Heimild: Goal
Emir Spahic fyrirliði bosníska landsliðsins brást illa við því þegar í ljós kom að Frakkar hafa ráðið heilt öryggislið fyrir leikinn gegn Bosníu í undankeppni EM 2012 sem verður spilaður á morgun.
Spahic, sem spilar í frönsku deildinni með Montpellier, telur óréttlátt að hugsað sé um Bosníu sem land fullt af hrottum.
Spahic, sem spilar í frönsku deildinni með Montpellier, telur óréttlátt að hugsað sé um Bosníu sem land fullt af hrottum.
,,Mér finnst að Frakkar telji Bosníu vera eins og fyrir fimmtán árum þegar þar var stríð í landinu," sagði hann við opinbera vefsíðu Montpellier.
,,Stærstu stjörnur í heimi hafa komið til Bosníu að spila á síðustu árum og aldrei hefur verið vesen. Ég skil ekki hvers vegna Frakkland þarf auka öryggisgæslu."
,,Mér þykir það leitt að starfsmenn franska landsliðsins telji okkur vera hrotta. Ég held að það eigi eftir að koma þeim skemmtilega á óvart hvernig andrúmsloftið á vellinum mun minna þá á frönsku deildina."


