Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Danmörku
Daniel Agger varnarmaður Danmerkur og Liverpool hefur ekki áhyggjur af varnarleik liðsins.
Liðið mætir Íslandi á Parken annað kvöld en varnarleikur liðsins gegn Þjóðverjum í síðasta mánuði var ekki sannfærandi.
,,Menn mega ekki einblína of mikið á varnarleikinn gegn Þjóðverjum," sagði Agger.
,,Það er enginn vafi á því að frammistaðan var ekki nægilega góð."
,;Margir okkar höfðu bara æft fimm eða sex sinnum, við vorum þungir og lítið æft með bolta. Tímabilið var varla byrjað."

