Heimild: Sky
Óvíst er hvort að Liam Lawrence, kantmaður Stoke City, muni fara til Portsmouth eins og áætlað hafði verið.
Eftir að Marc Wilson fór til Stoke í síðustu viku átti Lawrence að fara í hina áttina til Portsmouth.
Félagaskiptin hjá Lawrence hafa hins vegar ekki verið staðfest hjá ensku deildinni og óvíst er hvað verður.
Forráðamenn Portsmouth segja að öll skjöl hafi verið send áður en félagaskiptaglugginn lokaði og félagið voanst til að Lawrence fái félagaskipti á næstu dögum.

