Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   þri 07. september 2010 20:52
Magnús Már Einarsson
Undankeppni EM: Rooney skoraði í sigri Englendinga
Sviss 1 - 3 England
0-1 Wayne Rooney ('10)
0-2 Adam Johnson ('69)
1-2 Xherdan Shaqiri ('71)
1-3 Darren Bent ('88)
Rautt spjald: Stephan Lichsteiner (Sviss) ('65)

Englendingar byrja vel í undankeppni EM en liðið fylgdi eftir sigrinum á Búlgaríu með því að leggja Sviss 3-1 í kvöld.

Wayne Rooney skoraði fyrsta mark leiksins og blés þannig á gagnrýnisraddir en einkalíf hans hefur verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu.

Adam Johnson kom Englendingum í 2-0 áður en Xherdan Shaqiri minnkaði muninn.

Darren Bent innsiglaði hins vegar 3-1 sigur Englendinga með marki undir lokin.

Theo Walcott, leikmaður Arsenal, var borinn meiddur af velli í leiknum og meiðsli hans líta ekki vel út.
Slapp
banner