Matthias Freyr Matthiasson skrifar frá Danmörku
Gunnleifur Gunnleifsson var hrikalega ósáttur eftir tap gegn Dönum nú í kvöld. En mark Dana kom á 90 mínútu leiksins.
,,Þetta er alveg hrikalega sorglegt. Við spiluðum fínan leik, agaðan og góðan varnarleik allan tímann og fá svona aulamark í restina. Boltinn fer í gegnum tvo varnarmenn hjá okkur og lekur svo inn. Þetta er bara viðbjóður. Það er ömurlegt að fá ekkert út úr þessu " sagði Gunnleifur við Fótbolta.net eftir leikinn.
Nánar er rætt við Gunnleif í sjónvarpinu hér að ofan.























