Í kvöld kemur í ljós hvaða lið fara upp í aðra deild en þá fara síðari undanúrslitaviðureignirnar fram í úrslitakeppninni í þriðju deildinni.
Tindastóll stendur vel að vígi fyrir heimaleik sinn gegn Árborg en liðið hefur 3-0 forskot eftir fyrri leikinn.
Í hinni viðureigninni er Dalvík/Reynir 1-0 yfir gegn KB fyrir leik liðanna á Dalvík í kvöld.
3.deild karla - Úrslitakeppni:
17:15 Tindastóll - Árborg (3-0) (Sauðárkróksvöllur)
17:15 Dalvík/Reynir - KB (0-1) (Dalvíkurvöllur)


