Heimild: Heimasíða KSÍ
Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að færa þá fimm leiki sem eru í Pepsi-deild karla nk. sunnudag fram um 30 mínútur. Er þetta gert vegna birtuskilyrða.
Eftirfarandi leikir færast því og verða kl. 17.30:
sun. 12. sep. 10 17:30 Valur - Stjarnan Vodafonevöllurinn
sun. 12. sep. 10 17:30 Breiðablik - Fylkir Kópavogsvöllur
sun. 12. sep. 10 17:30 ÍBV - KR Hásteinsvöllur
sun. 12. sep. 10 17:30 FH - Selfoss Kaplakrikavöllur
sun. 12. sep. 10 17:30 Grindavík - Haukar Grindavíkurvöllur
19. umferð Pepsi-deildar karla lýkur svo mánudaginn 13. september kl. 20.00 þegar Fram og Keflavík eigast við á Laugardalsvelli.




