Heimild: Sky Sports
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands var mjög sáttur við frammistöðu Wayne Rooney í 3-1 sigri liðsins gegn Sviss í Basel í gærkvöldi. Mikið hefur verið í gangi í einkalífi Rooney undanfarna daga en hann lét það ekki á sig fá og átti frábæran leik þar sem hann skoraði fyrsta mark leiksins.
Margir erlendir fjölmiðalr töldu að Rooney væri ekki andlega hæfur til að spila þennan leik en hann afsannaði það í gærkvöldi, Capello til mikilalr ánægju.
„Mér fannst hann spila vel. Hann var alltaf í boltanum og skipaði sér stóran sess í leiknum,“ sagði Capello.
„Pressan á honum var mjög mikil en mér fannst hann standa sig mjög vel.“





