Heimild: Sky
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur lofað Daniel Pacheco að hann muni fá tækifæri í liði Liverpool á þessu tímabili.
Þessi ungi Spánverji kom til Liverpool frá Barcelona árið 2007 en hann hefur ekki leikið marga aðalliðsleiki síðan þá.
,,Hann er ungur en það er frábært að við getum gefið honum tækifæri á vellinum og ég held að þessi tækifæri verði fleiri eftir því sem á líður tímabilið," sagði Hodgson.
,,Núna þegar við erum í Evrópudeildinni er gott fyrir mig að geta gefið mönnum eins og honum, (Jay Spearing), og (Jonjo) Shelvey tækifæri."
,,Þeir þurfa leiki og við munum gefa þeim nóg af tækifærum á komandi mánuðum."

