Heimild: AP
Portúgalska knattspyrnusambandið mun í dag funda um framtíð landsliðsþjálfarans Carlos Queiroz.
Portúgal heur ekki byrjað jafn illa í undankeppni fyrir stórmót síðan árið 1996.
Liðið gerði 4-4 jafntefli við Kýpur á föstudag og tapaði 1-0 gegn Norðmönnum í gærkvöldi.
Queiroz var sjálfur ekki með í þessum leikjum þar sem hann var dæmdur í sex mánaða bann á dögunum fyrir að trufla lyfjapróf á HM í sumar.
Queiroz gæti hins vegar núna verið búinn að stýra sínum síðasta leik með Portúgal en liðið mætir Íslendingum þann 12.október næstkomandi.



