Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 09. september 2010 06:00
Hannes Daði Haraldsson
Heimild: Team talk 
Inler hugsanlega til Liverpool í janúar
Umboðsmaður svissneska miðjumannsins Gokhan Inler segir að Liverpool muni bjóða í sinn mann í janúar.

Inler er tuttugu og sex ára og spilar hjá Udinese á Ítalíu. Hann hefur verið orðaður við mörg af stærstu félögum Evrópu undanfarið og er talið að hann verði ekki lengi til viðbótar hjá Udinese.

,,Við vitum að Napoli átti í viðræðum við félagið um að fá Inler en það mál barst aldrei til okkar," sagði Dino Lamberti, umboðsmaður Inlers,

,,Í sambandi við Inter Milan þá höfðu þeir samband rétt áður en glugginn lokaði en við náðum engu samkomulagi."

,,Inler vildi líka vera aðeins lengur hjá félaginu. Eigendur félagsins hafa komið vel fram við hann og hann telur að hann þurfi að þróa leik sinn áður en hann tekur stökkið yfir í stórfélag."

"Þegar þú ferð í stórfélag verðuru að spila annars gleymistu bara."

"En hvort hann fari í janúar. Við getum aldrei útilokað það. Liverpool hefur fylgst með honum lengi. Alveg síðan Benítez var við völd."

Slapp
banner