Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 08. september 2010 23:28
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Capello hættir 2012 - Ætlar að njóta lífsins sem eftirlaunaþegi
Fabio Capello hefur staðfest að hann muni hætta sem landsliðsþjálfari Englendinga eftir EM 2012.

Capello tók við Englendingum af Steve McClaren í desember 2007 en hann fékk gagnrýni eftir að liðið datt út gegn Þjóðverjum í 16-liða úrslitum á HM í sumar.

Nú hefur þessi 64 ára gamli Ítali síðan að ákveðið að EM verði hans síðasta verkefni með Englendingum.

,,Við verðum auðvitað að komast áfram fyrst en eftir það verð ég of gamall," sagði Capello.

,,Ég vil njóta lífsins sem eftirlaunaþegi."
Slapp
banner
banner