,,Ég hefði viljað skora fleiri mörk, þetta var einum of tæpt í restina en hafðist fyrir horn," sagði Hermann Albertsson leikmaður Dalvíkur/Reynis sem tryggði sér sæti í 2. deild karla í kvöld eftir 2-2 jafntefli gegn KR, samanlagðan 3-2 sigur.
,,Þeir spiluðu meiri fótbolta en í síðasta leik að mínu mati og voru bara nokkuð sprækir. Þeir eru með ágætis stráka þarna fram á við voru mun betri í dag heldur en á laugardaginn."
,,Við bjuggumst við mjög öflugu liði enda er liðið komið í undanúrslit svo þeir hljóta að geta eitthvað, það er engin tilviljun."
2. deildin verður ef fram heldur sem horfir mikil landsbyggðadeild enda tvö lið að norðan, Dalvík/Reynir og Tindastóll að komast upp í kvöld og Fjarðabyggð á það á hættu að falla niður úr 1. deild.
,,Það er bara snilld, það væri samt allt í lagi að komast í keilu í Reykjavík annað slagið."























