,,Við vorum vægast sagt grátlega nálægt þessu og ég er gríðarlega stoltur af mínum mönnum. Það er ekki auðvelt að koma hingað norður og þurfa að massa 3-4 mörk til baka," sagði Adólf Bragason þjálfari Árborgar eftir 3-1 sigur liðsins á Tindastóli í úrslitakeppni þriðju deildarinnar í gærkvöldi.
Þrátt fyrir sigurinn tapaði Árborg einvíginu 4-3 og missti þar með af sæti í annarri deild.
Þrátt fyrir sigurinn tapaði Árborg einvíginu 4-3 og missti þar með af sæti í annarri deild.
,,Við erum búnir að missa þrjá í nám til útlanda og vorum ekki með okkar sterkasta. Það lögðu sig allir fram en síðustu 20 fannst mér við ekki ná kraftinum til að setja þetta fjórða mark."
Árborg hefur aldrei náð jafn langt í þriðju deildinni og Adólf segir að framtíðin sé björt hjá félaginu.
,,Við erum brattir. Það er fullt af ungum strákum sem eru að koma upp hjá okkur á Selfossi og eru að fá tækifæri í bland við þessa sem eru búnir að spila. Við erum með hörkulið."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























