,,Þetta var svekkjandi en við sýndum hugrekki að koma til baka og búa til leik," sagði Davíð Snorri Jónasson leikmaður KB eftir tap gegn Dalvík/Reyni í úrslitakeppni um sæti í 2. deild í gærkvöld en litlu munaði að KB stæli sigrinum í lokin.
,,Við spiluðum með markmanninn frammi í 2-3 mínútur. Við tókum sénsa en vissulega hefðu þeir getað klárað þetta fyrr. En það er alveg rétt að við fengum sénsa og hefðum getað stolið þessu í lokin."
,,En svona er þetta, þeir voru heilt yfir betra liðið og ég held að tvö bestu lið þriðju deildar hafi verið að spila í dag, en því miður fór bara annað liðið upp."
Lið KB var mun grimmara í gær en í fyrri leiknum á laugardag.
,,Við trúðum kannski aðeins meira á okkur sjálfa. Það var búið að tala um Dalvíkurliðið sem er gott en við vorum farnir að halda að þetta væri Barcelona á tímabili. En frá og með seinni hálfleiknum í síðasta leik fengum við smá sjálfstraust til að spila og gerðum mun betur."
Nánar er rætt við Davíð Snorra í sjónvarpinu að ofan.





















