Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 21. október 2010 11:11
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Tveir stuðningsmenn Liverpool stungnir í Napoli
Mynd: Guðmundur Karl
Sex stuðningsmenn Liverpool slösuðust í átökum í Napoli í gær og þar af voru tveir stuðningsmenn stungnir.

Liverpool mætir Napoli í Evrópudeildinni í kvöld og stuðningsmennirnir eru mættir til Ítalíu til að fylgjast með þeim leik.

Tveir voru fluttir á spítala með stungusár en talið er að meiðsli þeirra séu ekki lífshættuleg.

Lögregla vinnur nú að því að herða öryggisgæsluna fyrir leikinn sem hefst klukkan 17:00.
banner
banner
banner