Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
Marc McAusland: Lífið er gott í ÍR
   fös 05. nóvember 2010 19:57
Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Þórarinsson: Fann mig ekki alveg hjá Selfossi
Guðmundur í búningi Selfoss í kvöld.
Guðmundur í búningi Selfoss í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Mér fannst bara vera kominn tími á nýja áskorun og að prófa eitthvað nýtt. Ég fann mig kannski ekki alveg hjá Selfossi og ákvað að söðla um," sagði Guðmundur Þórarinsson við sjónvarp Fótbolta.net en hann gekk í kvöld í raðir ÍBV. En er erfitt að yfirgefa uppeldisfélagið, Selfoss?

,,Já, það er alltaf erfitt en mér fannst kominn tími á það. Ég held ég sé búinn að taka rétta ákvörðun með því að fara til ÍBV. Stundum þarf maður að prófa eitthvað nýtt og ég held að ÍBV sé rétti staðurinn í það," bætti hann við.

Guðmundur sagðist ekki hafa fundið sig hjá Selfossi en hann vakti þrátt fyrir það athygli fyrir góða frammistöðu í liðinu.

,,Já, en ég náði samt ekki alveg að springa út að mínu mati. Ég á vonandi meira inni og held ég geti sýnt það í eyjum," bætti hann við en það er stutt á milli Selfoss og Vestmannaeyja.

,,Já nákvæmlega, ég tala nú ekki um þegar Herjólfur er kominn í bakka. Það er stutt heim og mamma og pabbi mæta örugglega á leiki svo það er áfram sami stuðningurinn. Það skiptir líka miklu máli fyrir mig að prófa eitthvað nýtt og standa aðeins á eigin fótum því mamma og pabbi hafa hugsað um mig sem litla engilinn þeirra í 18 ár. Ég held það verði bara góð tilbreyting."

ÍBV var eitt af bestu liðum deildarinnar í sumar svo ljóst er að þar þarf Guðmundur að berjast við meiri samkeppni en hjá Selfossi.

,,Jú, að sjálfsögðu. Við erum með frábæran mannskap og ég er ekki í nokkrum vafa um að við verðum flottir í sumar ef við stillum hausinn rétt á. Að sjálfsögðu er erfitt fyrir mig að komast í liðið en ég þarf bara að sýna að ég hef hæfileika í það. Það er þessi áskorun sem ég er að tala um, að sýna það."

Nánar er rætt við Guðmund í sjónvarpinu að ofan.

banner
banner
banner