,,Þetta er bara æðislegt, og það er gaman að koma heim og fá að fara í æfingaferð á Íslandi. Þetta er svolítið öðruvísi, maður er bara túristi hérna sem ég hef ekki verið áður og búin að kíkja á Gullfoss og Geysi," sagði Sif Atladóttir nýr leikmaður sænska félagsins Kristianstad sem vann Val 0-1 í æfingaleik í Egilshöll í gærkvöld.
,,Maður er að upplifa túristann í fyrsta sinn, og það er helvíti gaman að vera túristi á Íslandi. Þetta er búið að vera æðisleg ferð í alla staði og ekki slæmt að enda með sigri í dag."
Sif var að koma til félagsins frá Saarsbrucken í Þýskalandi þar sem hún lék á tímabilinu sem var að ljúka.
,,Ég er ótrúlega ánægð með stelpurnar og allt í kringum þetta. Þetta er ungt og skemmtilegt lið. Ég er ótrúlega ánægð að vera komin yfir."
,,Maðurinn minn fór yfir og við vissum það snemma með hann. Svo þurftum við að bíða og sjá hvað gerðist með samninginn minn í Þýskalandi. Um leið og liðið var fallið kom ekkert annað til greina en að ég myndi fara yfir þegar það tækifæri bauðst. Og æðislegt að vinna með manninum mínum sem er bara gaman. Hann er búinn að vera með mér í Þýskalandi í ár," sagði hún en er mikill munur á Þýskalandi og Svíþjóð?
,,Ég veit það ekki, þetta á eftir að koma, en ég held að Svíarnir séu meira eins og við hérna heima. Þetta er svolítið hópastemmingn og meira vinkonur, en í Þýskalandi eru það meira samkeppnisaðilar. En ég er ótrúlega spennt fyrir sumrinu."