Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 17. maí 2011 08:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Extra sætt að ná að læða inn marki
Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölni) er leikmaður 1.umferðar í 1.deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það gekk nánast allt upp. Við fengum tvær sóknir eftir tíu mínútur og þá var staðan orðin 2-0," segir Guðmundur Karl Guðmundsson leikmaður Fjölnis um 3-2 sigur liðsins á Selfyssingum á föstudag.

Hinn tvítugi Guðmundur er leikmaður fyrstu umferðar í fyrstu deildinni en hann fór á kostum í leiknum á föstudag og skoraði eitt mark og lagði upp annað í fyrri hálfleik þegar Fjölnir komst í 3-0. Selfyssingar náðu að minnka muninn í 3-2 en lengra komust þeir ekki.

,,Þeir sóttu hart að okkur undir lokin. Við erum búnir að vera fá á okkur mörk úr hornum upp á síðkastið en Krummi (Hrafn Davíðsson) í markinu og strákarnir í vörninni stóðu sig frábærlega vel."

Guðmundur Karl á heima í Þorlákshöfn en hann er í skóla á Selfossi auk þess sem hann hefur verið í knattspyrnuakademíunni þar undanfarin ár ásamt nokkrum leikmönnum Selfyssinga.

,,Það var frábært að þekkja strákana í liðinu og í stúkunni og svo var extra sætt að ná að læða inn einu marki," sagði Guðmundur Karl sem fór í Fjölni þegar hann var í þriðja flokki.

,,Ég var í Ægi í yngri flokkunum og það var alltaf semi rígur á milli Ægis og Selfyssinga þanng að maður vildi ekki fara beint þangað. Síðan dró einn þjálfari mig á æfingu hjá Fjölni og þá var ekki aftur snúið," bætti Guðmundur Karl við en Selfyssingar hafa lýst yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir.

,,Þeir hafa verið að reyna eitthvað aðeins en ekkert alvarlega. Ég er mjög sáttur í Fjölni og verð þar allavega næstu árin."

Fjölnismenn enduðu í fjórða sæti í fyrstu deildinni í fyrra en í ár stefnir liðið ennþá hærra.

,,Við stefnum á að vera í toppbaráttu og berjast um þessi sæti og fara upp. Það er hundleiðinlegt að detta niður í miðjumoð. Ég held að það sé hugur í mannskapnum að gera betur en í fyrra og klára þetta og fara upp."

Næsti leikur Fjölnismanna er á fimmtudag en þá fær liðið Víking Ólafsvík í heimsókn.

,,Þeir eru með flott lið og það verður hörkuleikur því að þeir mæta dýrvitlausir eftir tap í fyrsta leik. Við steinlágum gegn þeim í Lengjubikarnum en það er hugur í okkur og við ætlum að vinna þennan leik," sagði Guðmundur Karl að lokum.
Slapp
banner
banner