Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 24. maí 2011 09:30
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Bræður mínir vilja koma hingað
Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík) er leikmaður 2. umferðar
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Tomi Ameobi, framherji BÍ/Bolungarvíkur, er leikmaður 2. umferðar í fyrstu deild karla en hann var öflugur þegar liðið sigraði Hauka 2-1 á útivelli í fyrrakvöld.

,,Við hefðum átt að fá að minnsta kosti stig úr fyrsta leik tímabilsins en við vorum rændir. Það var því mjög gott að ná í þrjú stig á laugardaginn," sagði Ameobi sem skoraði eitt mark og lagði upp annað á óeigingjarnan hátt.

,,Ég ætlaði að skjóta en síðan heyrði ég Abs (Michael Abnett) öskra á mig svo ég renndi boltanum til hliðar á hann."

Ameobi var ekki heill heilsu fyrir leikinn en á síðustu stundu var ákveðið að hann myndi spila.

,,Ég var búinn að vera að glíma við hnémeiðsli og hafði ekkert æft alla vikuna. Við ákváðum hálftíma fyrir leik að ég myndi spila en það var gott að ég náði að spila á endanum."

Ameobi ólst upp hjá Newcastle og Leeds en undanfarin ár hefur hann verið á mála hjá félögum í ensku neðri deildunum. Eftir meiðsli í vetur stökk Ameobi á tækifærið að koma til Íslands.

,,Ég hef verið meiddur síðustu 5-6 mánuði svo ég vildi ekki bíða þar til í júní eða júlí eftir að fara að spila. Þegar þetta kom upp sá ég þetta sem tækifæri fyrir mig til að fá að spila og skora mörk."

Shola Ameobi, eldri bróðir Tomi, hefur verið einn af aðalframherjum Newcastle í áraraðir. Á dögunum lék yngri bróðir hans Sammy síðan sinn fyrsta leik með Newcastle en hann varð 19 ára fyrr í mánuðinum.

,,Yngri bróðir minn lék sinn fyrsta leik gegn Chelsea á dögunum. Ég talaði við hann eftir leik og hann sagði að þetta hefði verið ótrúlegt. Hann verðskuldar þetta, hann hefur lagt hart að sér og vonandi gengur honum áfram vel," sagði Tomi um Sammy.

Tomi hefur sjálfur fengið að kljást við Shola inni á vellinum því þeir mættust í leik fyrir tveimur árum.

,,Ég spilaði æfingaleik móti eldri bróður mínum árið 2009 þegar hann spilaði með Newcastle og ég með Doncaster. Það væri draumur að spila með þeim einhverntímann og maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni."

Shola og Sammy hafa lýst yfir áhuga á að kíkja í heimsókn til Íslands og þeir gætu mætt á Vestfirðina í sumar.

,,Þeir vilja kom hingað. Eldri bróðir minn er að fara í sumarfrí og veit ekki hvort hann hafi tíma en vonandi fáum við að sjá þá hér einhverntímann."

Tomi er ánægður með byrjunina á Íslandi en hann segist lítið vera farinn að hugsa út í framtíð sína.

,,Við sjáum til hvernig gengur. Hingað til hefur þetta gengið frábærlega og nánast alveg eins og ég vildi. Ég tek bara einn leik fyrir í einu og legg mig 100% fram og sé síðan hvað gerist," sagði Tomi.

Sjá einnig:
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Slapp