Elvar Páll Sigurðsson (KA) er leikmaður 3. umferðar
„Þetta er bara karakterinn í liðinu. Við gefumst aldrei upp, Gulli (Gunnlaugur Jónsson þjálfari) kom með smá hárblásararæðu í hálfleik sem vakti okkur til lífsins," segir Elvar Páll Sigurðsson, leikmaður KA, sem er leikmaður 3. umferðar í 1. deild.
KA vann ævintýralegan 4-3 útisigur á HK á Kópavogsvelli á föstudag eftir að HK var 3-1 yfir. Elvar er tvítugur og átti stórleik en hann skoraði þrennu í leiknum.
Elvar er hjá KA á lánssamningi frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. „Við fengum trú þegar Andrés Vilhjálmsson skoraði annað markið," segir Elvar.
Í spá þjálfara og fyrirliða fyrir mót var KA spáð fallbaráttu en eftir fyrstu þrjár umferðirnar situr liðið í öðru sæti. Elvar telur að menn hafi verið að vanmeta KA fyrir mót. „Við vorum ekkert að kippa okkur upp við þessa spá. Við vitum alveg hvað við getum. Við ætlum að gera mun betur en þetta níunda sæti sem okkur var spáð. Okkur gekk ágætlega á móti erfiðum liðum á undirbúningstímabilinu," segir Elvar sem kann vel við sig á Akureyri.
„Það er gott líf hérna fyrir norðan. Ég var að koma úr vinnunni. Maður er að mála eins og enginn sé morgundagurinn."
Lélegur í Brynju-ísnum
Elvar hefur farið ansi oft á Greifann síðan hann mætti norður. „Við vorum þarna á hverjum degi nánast fyrst þegar við komum. Svo hefur það farið minnkandi. Ég er annars búinn að vera mjög lélegur í Brynju-ísnum, ég hef bara farið þangað tvisvar," segir Elvar.
Hann er með tennisblóð í æðum enda er bróðir hans Arnar Sigurðsson margfaldur Íslandsmeistari í tennis. „Ég var að þjálfa þetta í fimm ár en get ekki mikið. Ég var ekkert sérstakur í tennis en kann tæknina. Ég hef aldrei náð að vinna bróður minn, ég held að það sé ekki fræðilegur en maður hefur lært mikið af honum," segir Elvar sem er mjög ánægður með Gunnlaug þjálfara.
„Hann virkar mjög vel á mig. Hann heldur ákveðinni fjarlægð frá manni en er samt vinur manns. Maður getur talað við hann um allt og svo veit hann mikið um fótbolta og veit alveg hvað hann er að gera."
„Ég sé alls ekki eftir því að hafa farið í KA. Ég ætlaði að prófa þetta bara í einn mánuð fyrst en svo líkar mér svo vel og hef mikið fengið að spila. Það skilar sér. Ég ætla að standa mig hér og gera sem besta hluti fyrir liðið svo sé ég bara hvað gerist í framhaldinu."



