Kristján Finnbogason (Grótta)
Kristján Finnbogason markvörður Gróttu er leikmaður fjórðu umferðar í fyrstu deild karla en hann stóð sig vel í 1-0 sigri liðsins á Bí/Bolungarvík í gær.
,,Það var gríðarlega mikilvægt og lífsnauðsynlegt að taka fyrsta sigurinn," sagði Kristján við Fótbolta.net í dag en hann varði oft vel í síðari hálfleiknum.
,,Það var gríðarlega mikilvægt og lífsnauðsynlegt að taka fyrsta sigurinn," sagði Kristján við Fótbolta.net í dag en hann varði oft vel í síðari hálfleiknum.
,,Þeir áttu einhver færi, sérstaklega í seinni hálfleik, sem ég náði að loka á. Til að við náum í sigra þá verða allir að eiga góðan leik og það áttu það allir í gær. Þegar allir gefa allt sitt í leikina þá eigum við séns en annars ekki."
Gróttu var spáð botnsætinu fyrir mót en liðið er í áttunda sæti með fimm stig eftir fjóra leiki í sumar.
,,Markmiðið okkar er að ná stöðugleika í fyrstu deild og við vitum að annað árið hjá liðum í deildinni getur oft verið erfitt. Við rétt náðum að hanga uppi í fyrra og eðlilega var okkur ekki spáð spes gengi en markmiðið okkar er að festa okkur í sessi í þessari mjög erfiðu fyrstu deild."
Kristján spilar ekki einungis með Gróttu því hann er einnig aðstoðarþjálfari hjá Sigurði Helgasyni þjálfara liðsins.
,,Það er skemmtilegt. Siggi er hausinn í þessu en það er gott fyrir hann að hafa einhvern til að tala við. Hann stýrir þessu auðvitað og gerir það vel, menn eru ánægðir með hann."
Sigurður sannfærði Kristján um að halda áfram í boltanum í ár en hann hafði ætlað að leggja skóna á hilluna. Kristján varð fertugur í síðasta mánuði og hann býst við að þetta sé síðasta tímabilið.
,,Ég held að ég geti verið óhræddur við að segja það þó að maður hafi sagt þetta svolítið oft. Ég geri 90% ráð fyrir því að þetta sé síðasta tímabilið, maður er orðinn vel lúinn."
,,Maður reynir að vera klár alltaf í næsta leik og það er mjög erfið törn að koma, með þessum leik í gær eru fjórir leikir á 13 dögum. Það er gott að hafa stóran og breiðan hóp en ég er ekki eini markvörðurinn og ef eitthvað kemur upp á er gott að eiga menn til góða."
Kristján ætlaði einnig að hætta árið 2009 og þá lék hann sem framherji í nokkrar mínútur í lokaleik tímabilsins. Kristján leikur oft sem útispilari á æfingum og hann kom inn á sem framherji í æfingaleik gegn Þór í vor. Hann býst þó ekki við að klára ferilinn í ár sem framherji í ár.
,,Ég fékk tækifæri til þess í hitteðfyrra hjá Ása Haralds og það átti að vera síðasti leikurinn. Ég ætla ekki að pressa á Sigga á að fá spila í senternum en við sjáum til," sagði Kristján léttur í bragði að lokum.
Sjá einnig:
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)




