Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 08. júní 2011 16:15
Elvar Geir Magnússon
Bestur í 1. deild: Stefni á markakóngstitilinn
Hjörtur Hjartarson (ÍA) er leikmaður 5. umferðar 1. deildar
Hjörtur í leiknum á Ísafirði í gær.
Hjörtur í leiknum á Ísafirði í gær.
Mynd: Ívar Atli Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Hjörtur Hjartarson hefur verið funheitur í byrjun tímabils með Skagamönnum og er markahæstur í deildinni með fimm mörk. Hann er leikmaður 5. umferðar eftir að ÍA vann 6-0 útisigur á BÍ/Bolungarvík en þeir gulu tróna á toppi deildarinnar.

„Við mættum bara miklu betur og einbeittari til leiks en þeir. Mér fannst ég greina strax þegar við löbbuðum út á völlinn að hugarfar okkar væri sterkara.," segir Hjörtur.

„Þeir eru með flinka menn á miðjunni en hægt og bítandi náðum við tökum á leiknum. Eftir fyrsta markið var þetta aldrei nein einasta spurning."

„Ég get fullyrt það. Þetta var okkar besti leikur. Við spiluðum vel og Djúpmenn hafa örugglega átt dapran dag svo það var auðveldara að eiga góðan leik en ella."

Hjörtur hefur spilað mun stærra hlutverk með ÍA á tímabilinu en ráð var gert fyrir.

„Mun stærra. Þegar ég skrifaði undir nýjan samning síðasta haust töluðum við um það ég myndi vera meiri stuðningur við liðið í sumar. Stefán Þórðarson gaf mér tækifærið með því að láta reka sig út af í bikarleiknum á Selfossi, ég datt inn í byrjunarliðið þá og þetta hefur gengið vonum framar," segir Hjörtur. „Ég spilaði 21 leik í fyrra og var leikjahæstur allra í liðinu sem kom mjög á óvart."

Auðveldara að skora
Standið á Hirti er talsvert betra en á síðasta tímabili. „Ég er einhverjum 8-9 kílóum léttari en ég var á sama tíma í fyrra. Menn geta rétt ímyndað sér hvernig það er að byrja fótboltaleik á því að setja hátt í 10 kíló af lóðum á sig áður en þeir fara inná."

Það er samt ekki bara formið sem gerir það að verkum að Hjörtur er að skora grimmt. „Liðið núna er betra en í fyrra, leikmennirnir eru betri, það eru allir að spila betur og það er því auðveldara að skora með þessu liði en liðinu í fyrra."

Hjörtur setur stefnuna á markakóngstitilinn þó hann segi aðalatriðið að liðið komist upp í Pepsi-deildina. „Jú jú ég set stefnuna á það en það eru margir fleiri sem eru æstir í þennan titil. Enginn eins æstur og liðsfélagi minn Gary Martin. Ég held að hann bölvi aðeins í hljóði í hvert skipti sem ég skora," segir Hjörtur í gríni.

„Ég hef tvisvar orðið markahæstur í þessari deild. Þó þetta sé klisja er þó aðalmálið að Skaginn fari upp."

Hjörtur segir deildina jafnari en hann hafði búist við. „Ég bjóst við skýrari línum milli sex efstu og sex neðstu en það virðast öll lið vera að tapa stigum. Þróttarar hafa líka komið á óvart miðað við hvernig þeir voru að spila í vor," segir Hjörtur.

Ágætt að kveðja mitt félag með því að aðstoða það upp
Hjörtur starfar sem íþróttafréttamaður og fer til Danmerkur að fjalla um og lýsa leikjum Evrópumóts U21-landsliða. Hann lét breyta flugi sínu út og fer aðfaranótt laugardagsins til að geta náð næsta leik Skagamanna sem er gegn ÍR á föstudag.

„Vinnuveitendur og samstarfsmenn á RÚV voru svo liðlegir að leyfa mér þetta," segir Hjörtur. „Ef Ísland kemst ekki upp úr riðlinum er ég kominn heim 19. júní og missi þá bara af einum leik. Ef Ísland fer alla leið þá missi ég af tveimur leikjum."

„Stebbi Þórðar er kominn í gang svo ég hef engar áhyggjur af því að Skaginn leysi þetta ekki. Það eru menn þarna til að skora. Ég er viss um að þeir plummi sig prýðilega í minni fjarveru."

Miklar líkur eru á því að Hjörtur sé á sínu síðasta tímabili sem leikmaður þó hann vilji ekkert gefa út þess efnis. „Ef Skaginn fer upp myndi ég segja að það væru svona 99% líkur á að þetta væri mitt síðasta tímabil," segir Hjörtur sem mun ekki leika aftur í efstu deild.

„Þeim kafla er lokið hjá þeim og það væri ágætt að kveðja mitt félag með að aðstoða það upp í efstu deild. Ég er að fjalla um úrvalsdeildina og það fer ekki með því að spila í henni," segir Hjörtur Hjartarson.

Sjá einnig:
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Slapp
banner
banner