Jón Daði Böðvarsson (Selfoss) er leikmaður 6. umferðar 1. deildar
,,Þetta var fyrsti leikurinn okkar í sumar þar sem þetta var allan tímann heilsteypt. Við náðum loksins að halda hreinu og vorum ekki að gefa þessi óþarfa mörk sem við höfum verið að fá á okkur," sagði Jón Daði Böðvarsson leikmaður Selfyssinga um 3-0 sigur liðsins á Þrótti síðastliðinn föstudag. Jón Daði skoraði eitt mark í leiknum og var afar öflugur en hann er leikmaður 6. umferðar á Fótbolta.net.
Selfyssingar komust með sigrinum á föstudag upp í annað sæti deildarinnar en liðið er komið á skrið eftir erfiða byrjun.
,,Fyrsti leikurinn á móti Fjölni var sjokk. Það var fyrsti heimaleikurinn og við lentum 3-0 undir. Eftir að höfum við verið að bæta okkur meira og meira og sjálfstraustið er að komast á fullt aftur. Vonandi höldum við áfram á góðu skriði."
,,Við reynum að stefna að því að komast í Pepsi-deildina. Þessi deild er svakalega jöfn, það geta allir unnið alla og þetta er alls ekki auðvelt. Þetta verður mjög krefjandi verkefni í sumar."
Selfyssingar féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra en í vetur fékk liðið nokkra nýja leikmenn til liðs við sig og þar á meðal fjóra leikmenn frá Afríku.
,,Þetta er klárlega mikill liðsstyrkur. Þeir eru virkilega þéttir og flottir. Þeir eru að koma í allt aðra menningu en eru að koma mjög vel inn í þetta. Síðan er Norðmaðurinn Endre Brenne að standa sig mjög vel líka," sagði Jón Daði sem er ánægður með hópinn.
,,Mér finnst við persónulega vera miklu sterkari núna en í fyrra. Tímabilið hjá okkur í fyrra var ekkert spes. Menn voru ekki í besta formi og það var erfitt fyrir lið að fara upp með bara heimastráka nánast án þess að styrkja sig. Liðið í ár er töluvert betra eftir að hafa fengið þessa nýju menn. Logi (Ólafsson) og Auðun (Helgason) eru síðan gott þjálfarateymi og þeir eru að gera klúbbinn betri."
Jón Daði var einn af betri leikmönnum Selfyssinga í fyrra og nokkur félög sýndu honum áhuga síðastliðið haust.
,,Það var alltaf eitthvað í gangi en mér fannst ég persónulega þurfa að sanna mig aðeins meira á heimaslóðunum í staðinn fyrir að fara of fljótt í aðra hluti."
Í vetur fór Jón Daði til Danmerkur þar sem hann var í láni hjá AGF í nokkra mánuði.
,,Það var frábær tími þessir þrír mánuðir sem ég var hjá þeim. Ég lærði svakalega mikið og þroskaðist gífulega mikið sem leikmaður þarna. Þetta er mjög flottur klúbbur og maður kom betri til baka eftir þessa reynslu."
,,Þeir verða örugglega áfram í bandi við mig en ég hugsa rosalega lítið út í þetta núna. Ég hugsa bara um að standa mig vel með Selfossi og síðan sjáum við hvernig fer," sagði Jón Daði að lokum.
Sjá einnig:
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)

