Árni Freyr Guðnason (ÍR) er leikmaður 7. umferðar 1. deildar
,,Þetta var mjög góður sigur en við vorum ekkert sérstaklega góðir," sagði Árni Freyr Guðnason leikmaður ÍR í samtali við Fótbolta.net en hann er leikmaður 7. umferðar í 1. deild karla. Breiðholtsliðið vann granna sína í Leikni 3-2 í hörkuleik.
ÍR er í áttunda sæti deildarinnar með tíu stig en aðeins þrjú stig eru upp í annað sætið.
ÍR er í áttunda sæti deildarinnar með tíu stig en aðeins þrjú stig eru upp í annað sætið.
,,Það voru kaflar í leiknum sem gerðu að verkum að við unnum leikinn. Þetta er sérstaklega gaman fyrir ÍR-strákana."
,,Þetta var bara eins og áhorfendur vilja fá, það var fultl af fólki mætt. Ég held að allir hafi fengið eitthvað fyrir peninginn," segir Árni Freyr sem er ekkert í skýjunum með gengi ÍR í heildina.
,,Þetta hefur verið allt í lagi, ekki mikið meira en það. Ég hefði viljað hafa svona þrjú til fjögur stig fleiri í pokanum. Við eigum liðin fyrir neðan okkur næst og ef við vinnum þau ekki þá verðum við í sama basli og þau."
Árni var meiddur í byrjun móts en hefur verið að finna sitt gamla form í síðustu leikjum.
,,Ég var meiddur í byrjun móts og gat ekki spilað alla leiki þá en ég er í finu standi núna. Ég er búinn að ná 90 mínútum þrjá leiki í röð og þá er þetta komið."
Næsti leikur ÍR verður gegn HK á föstudag en HK-ingar eru á botninum með eitt stig og Ragnar Gíslason stýrir sínum fyrsta leik í deildinni með liðið, hann tók við af Tómasi Inga Tómassyni sem var látinn taka pokann sinn.
,,Þeir eru með nýjan þjálfara og voru ágætir gegn Grindavík og það er alltaf erfitt að mæta liðum með nýjan þjálfara sem eru með nýjar áherslur og kannski meiri gredda því menn vilja sanna sig."
Árni er uppalinn FH-ingar og segist vonast eftir því að spila með liðinu á ferli sínum.
,,Það er miklu meiri rígur hjá mér á móti Haukum heldur en Leikni en það er aukast eitthvað þessi rígur fyrir mig gegn Leikni."
,,Eftir hvert tímabil hef ég hugsað það að fara í Pepsi deildina en bæði í fyrra og núna hefur markmiðið vera að koma ÍR upp, það margt búið að breytast hjá ÍR síðan ég kom hingað 2008.
,,Ég held samt að ég fari í Pepsi einhvertímann, ég er uppalinn í FH og ég hugsa að ég reyni að komast þangað. Það er draumurinn að spila í FH."
Sjá einnig:
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)


