Hjörtur Hjartarson (ÍA) er leikmaður 8. umferðar 1. deildar
,,Þetta var mun stærri sigur en flestir af okkur reiknuðu með. Við erum með það gott lið að við förum í alla leiki með það markmiði að vinna en 6-0 gegn Fjölni sem er með flott lið og góðan þjálfara er betra en við bjuggumst við," sagði Hjörtur Júlíus Hjartarson framherji ÍA en hann er leikmaður 8. umferðar í fyrstu deild karla eftir að hafa skorað þrennu í stórsigri á Fjölni.
Hjörtur kom ferskur til baka í lið ÍA eftir að hafa farið til Danmerkur í átta daga þar sem hann fjallaði um EM U21 árs landsliða fyrir RÚV.
,,Mér finnst ágætt að taka nokkra daga í frí, hægja á mér og koma síðan ferskur til baka en það hentar ekki öllum," sagði Hjörtur.
,,Ég er í ágætis formi og þegar maður er í ágætis formi þolir maður alveg að missa af nokkrum æfingum og leik. Maður reynir að passa sig á því í þessum ferðum að drukkna ekki í bjórnum og vera ekki á kafi í hamborgurunum og þetta slapp fyrir horn núna."
Skoraði líka þrennu eftir utanlandsferð 2009:
Hjörtur hefur góða reynslu af því að fara erlendis í vinnuferðir og koma í markastuði til baka því hann skoraði einnig þrennu með Selfyssingum fyrir tveimur árum.
,,Þetta er eiginlega nákvæmlega það sama og gerðist þegar ég fór á EM kvenna í Finnlandi árið 2009. Þá var ég með Selfossi og Gunnlaugur Jónsson þjálfari var svo almennilegur að henda mér í byrjunarliðið þegar ég kom heim og ég skoraði þrennu í 6-1 sigri. Þetta er eiginlega nákvæmlega sama handritið."
Skagamenn eru eftir sigurinn á fimmtudag með 22 stig á toppi deildarinnar, sex stigum á undan Selfyssingum.
,,Þetta er klárlega framar björtustu vonum. Skagamenn eru svolítið brenndir af fyrstu tveimur tímabilunum í fyrstu deildinni þar sem okkur gekk allt í haginn í vorleikjunum og síðan var niðurgangur þegar mótð byrjaði."
,,Við vorum varir um okkur áður en við fórum inn í þetta mót og horfðum ekkert á það hvernig okkur gekk í vorleikjunum. Við reyndum að koma að aðeins meiri auðmýkt í mótið en undanfarin ár."
Gary Martin einn markagráðugasti maður sem ég hef séð:
Enski framherjinn Gary Martin er kominn með fimm mörk í sumar en hann er ósáttur við að hafa ekki skorað meira eftir að hafa verið með meira en mark að meðaltali í leik á undirbúningstímabilinu.
,,Ég held að hann sé ekkert fúll að ég sé að skora svona mikið. Ég held að hann sé aðallega fúll yfir því að hann sé ekki búinn að skora meira. Hann er einhver markagráðugasti maður sem ég hef kynnst eða sé til."
,,Ég er markagráðugur sjálfur og þó að það hafi aðeins minnkað á síðari hluta ferilsins þá komst ég aldrei í hálfkvisti við hann. Hann er mjög ósáttur við að vera kominn með fimm mörk í fyrstu átta leikjunum. Hann er þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar en hann vill meira. Hann er frábær senter og á eflaust eftir að skora mikið fleiri mörk," sagði markahrókurinn Hjörtur að lokum.
Sjá einnig:
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)


