Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. júlí 2011 11:18
Elvar Geir Magnússon
Nakin á vellinum ef Paragvæ vinnur Suður-Ameríku bikarinn
Mynd: Off The Post
Fyrirsætan Larissa Riquelme er gríðarlegur aðdáandi paragvæska landsliðsins. Hún hefur nú gefið það loforð að hún muni sitja fyrir nakin á vellinum ef liðið vinnur Suður-Ameríku bikarinn.

Paragvæ lék sinn fyrsta leik í keppninni í gær en gerði aðeins jafntefli við Ekvador.

,,Ég verð nakin á vellinum ef við vinnum. Ég hef mikla trú á liðinu og það getur gert góða hluti," segir Riquelme sem er í Argentínu og mun mæta á alla leiki Paragvæ í keppninni.

Hún fylgdi liðinu líka á HM í Suður-Afríku í sumar og er kölluð kærasta liðsins í heimalandinu. Á HM bauð hún liðinu fram aðstoð sína í að veita móralskan stuðning.
banner
banner
banner
banner