Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 06. júlí 2011 09:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Draumurinn er að spila með stórliði
Babacar Sarr (Selfoss) er leikmaður 9. umferðar 1. deildar
Babacar í miðjunni ásamt félögum sínum Ibrahima Ndiaye og Sene Abdalha sem er í 2. flokki á Selfossi.
Babacar í miðjunni ásamt félögum sínum Ibrahima Ndiaye og Sene Abdalha sem er í 2. flokki á Selfossi.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Babacar Sarr átti stórleik á miðjunni þegar Selfoss lagði BÍ/Bolungarvík 1-0 á útivelli síðastliðinn fimmtudag. Babacar er leikmaður níundu umferðar í fyrstu deildinnni hér á Fótbolta.net.

„Ég var mjög sáttur með frammistöðu liðsins gegn BÍ/Bolungavík þar sem liðið okkar átti mjög góðan leik þann dag," sagði Babacar við Fótbolta.net.

Selfyssingar eru í fínum málum í öðru sæti í fyrstu deildinni og Babacar hefur trú á að liðið geti komist aftur upp í Pepsi-deildina.

„Lið Selfoss hefur verið mjög sterkt og baráttuglatt gegn hinum liðunum og mér finnst ekki vera mikill munur á okkar liði og liðunum í úrvalsdeildinni."

,,Við erum með mjög hæfileikaríka leikmenn sem geta vel spilað í efstu deild, þannig að ég renni hýru auga þangað.“


Babacar kom til Selfyssinga fyrir tímabilið á sama tíma og tveir aðrir leikmenn frá Senegal, þeir Ibrahima Ndiaye og Sidy Sow. Babacar er sáttur við lífið á Selfossi.

„Ég kann mjög vel við að búa á Selfossi. Fólkið hérna er mjög almennilegt og hefur hugsað vel um okkur. Ég kann líka vel við Reykjavík því að ég hef gaman af því að vera þar sem það er alltaf eitthvað í gangi.“

Babacar hefur leikið afar vel með Selfyssingum á tímabilinu en þessi tvítugi leikmaður stefnir á stærri hluti í framtíðinni.

„Mín markmið í fótboltanum eru bara að bæta mig meira og meira sem leikmaður og fá stærri liðin til að taka eftir mér. Ég vil auðvitað gjarna spila í stærri deildunum eins og á Englandi, draumurinn er að spila með stórliði."

,,En til að sá draumur geti ræst verð ég að leggja mig mjög hart fram og ég mun halda áfram að leggja allt mitt af mörkum fyrir Selfoss. Í augnablikinu er mitt eina markmið að koma Selfossi upp í úrvalsdeildina,"
sagði Babacar að lokum.

Sjá einnig:
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Slapp
banner
banner
banner