Kristján Finnbogason (Grótta) er leikmaður 10. umferðar 1. deildar
,,Ég var mjög ánægður, þetta var svakalega mikilvægur sigur til að halda okkur í deildinni," sagði Kristján Finnbogason markvörður Gróttu í samtali við Fótbolta.net.
Kristján átti frábæran leik í marki Gróttu gegn Leikni er liðið vann 2-1 sigur fyrir helgi og er leikmaður umferðarinnar.
Kristján átti frábæran leik í marki Gróttu gegn Leikni er liðið vann 2-1 sigur fyrir helgi og er leikmaður umferðarinnar.
,,Núna eru bæði HK og Leiknir svolítið frá okkur, við eigum HK á morgun (Í dag) og það er annar mjög mikilvægur leikur."
Þétt leikjaprógram er í fyrstu deildinni þessa dagana og hinn fertugi Kristján segir að það taki á.
,,Skrokkurinn hann þarf sinn tíma en maður tekur því rólega á æfingum inni á milli."
Kristján hefur staðið vaktina vel í marki Gróttu og er liðið með þrettán stig.
,,Það er gaman þegar gengur vel persónulega og liðinu. Maður er í þessu af því að þetta er gaman."
,,Við höfum verið að kroppa inn stig, það var okkar markmið að ná stöðuleika í 1. deildinni, það hefur gengið ágætlega framan af. Það er stutt á milli í þessu, fyrir leikinn við Leikni höfðum við tapað tveimur í röð og þá vorum við strax komnir í níunda til tíunda sæti. Það er mjög stutt á milli."
Lið Gróttu er töluvert breytt frá liðinu í fyrra en Kristján telur liðið svipað af styrkleika.
,,Þetta er mjög svipað lið, við erum búnir að missa þrjá öfluga menn í langvarandi meiðsli en við fengum tvo til þrjá menn fyrir mót. Þetta er mjög svipað lið en okkur hefur gengið aðeins betur," sagði Kristján sem segir að markmiðið á Seltjarnarnesi sé að halda sæti sínu.
,,Það er bara að ná stöðugleika í 1. deildinni, það eru markmið okkar númer eitt, tvö og þrjú," sagði Kristján að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)

