Mark Doninger (ÍA) er leikmaður 11. umferðar 1. deildar
,,Leikurinn var erfiður og aðstæður voru erfiðar en við náðum að aðlagast þeim og ná í verðskulduð þrjú stig. Ég var mjög ánægður með mína frammistöðu og það var frábært að skora tvö mörk og vinna leikinn," sagði Mark Doninger sem skoraði bæði mörk ÍA í 2-0 sigri á Leikni R. í vikunni.
Þessi enski miðjumaður er leikmaður 11. umferðar í fyrstu deildinni hér á Fótbolta.net. Doninger hefur verið fastamaður í liði ÍA í sumar en liðið hefur unnið tíu leiki og gert eitt jafntefli það sem af er móti.
Þessi enski miðjumaður er leikmaður 11. umferðar í fyrstu deildinni hér á Fótbolta.net. Doninger hefur verið fastamaður í liði ÍA í sumar en liðið hefur unnið tíu leiki og gert eitt jafntefli það sem af er móti.
,,Ég bjóst alltaf við því að við myndum standa okkur vel á þessu tímabili og ég hef reynt mitt besta til að koma með það hugarfar í liðið að tapa ekki og það er byrjað að sýna sig."
,,Ég reyni alltaf að ætlast til að sjá það besta hjá öllum og hafa gæðin mikil bæði í leikjum og á æfingum. Þess vegna eru allir einbeittir á það sem við ætlum að reyna að gera. Ég tala alltaf við Arnar Má Guðjónsson um að fara taplausir í gegnum allt tímabilið og ég held að það sé gott og raunhæft markmið sem við getum haft í huga."
Doninger lék áður með varaliði Newcastle eins og kom fram í ítarlegu viðtali við hann fyrr á árinu.
,,Það er erfitt að bera íslenska fótboltann saman við þann enska því að leikstíllinn er allt öðruvísi. Þú færð aðeins meiri tíma á boltann hér og ég kann vel við það. Leikurinn er heldur ekki alltaf á 100 mílna hraða eins og á Englandi. Hér á Akranesi reynum við alltaf að spila boltanum frá vörninni og það er frábært að spila þannig. Dómararnir eru líka strangari og þú kemst ekki upp með jafmikla baráttu við leikmenn eins og þú vilt stundum."
Doninger kom til Íslands í byrjun árs en hann segir lífið hér á landi vera ólíkt því sem er á Englandi.
,,Þegar þú berð saman þaðan sem ég kem í Newcastle og Akranes. Það er í raun ekki hægt að bera það saman," sagði Doninger hlægjandi.
,,Lífið á Akranesi er rólegt miðað við það sem ég er vanur en ég hef aðlagast mjög vel hér með Gary Martin og Fannari Gíslasyni sem ég bý með. Við reynum að finna okkur eitthvað að gera eins og hægt er en það eru takmörk á því hversu oft þú getur farið í ræktina á hverjum degi."
Doninger er með samning við Skagamenn fram á haust en hann segir heilla að spila í Pepsi-deildinni að ári.
,,Ég er að njóta þess að spila fótbolta hér á Akranesi og allir hjá félaginu, frá formanninum að búningastjóranum hafa verið frábærir við mig."
,,Samningurinn minn rennur út í lok september svo ég verð að bíða og sjá en Pepsi-deildin er heillandi deild og deild sem ég myndi klárlega vilja spila í," sagði Doninger að lokum.
Sjá einnig:
Leikmaður 10.umferðar - Kristjá Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)




