Pape Mamadou Faye (Leiknir) er leikmaður 12. umferðar
,,Ég var mjög ánægður með þetta, það skipti okkur miklu máli að ná fyrsta sigrinum og ekki verra að ná honum gegn KA sem er ekki langt frá okkur," sagði Pape Mamadou Faye í samtali við Fótbolta.net.
Pape var á skotskónum í leiknum og skoraði bæði mörk Leiknis í 0-2 sigri er leikmaður tólftu umferðar hér á Fótbolta.net.
,,Þetta var mjög mikilvægt og gefur mönnum sjálfstraust. Við vorum að spila vel í þessum leik og það var allt annað að sjá liðið í þessum leik. Zoran tók við liðinu og hann breytti til í taktík og það hjálpaði okkur að ná fyrsta sigrinum."
,,Persónulega kveikir það í manni að skora tvö mörk og maður fær sjálstraust. Eftir leik fór sjálfstraustið upp og ég er bara orðinn spenntur fyrir því að mæta HK í næsta leik."
Þrátt fyrir slæmt gengi í sumar segir Pape að stemmningin á meðal leikmanna hafi haldist góð.
,,Þrátt fyrir að liðinu hafi ekki gengið vel þá hafa menn ekki misst trúna og menn leggja sig fram á öllum æfingum og það er góð stemmning í hópnum. Auðvitað eftir sigurinn á laugardag er skemmtilegra og það sást strax á æfingu í gær að það var allt annað sjá hópinn en menn höfðu aldrei misst trúna."
Zoran Miljkovic tók við Leikni fyrir skömmu en þetta var hans annar leikur með liðið. Hann tók við af Sigursteini Gíslasyni sem var láttin taka pokann sinn.
,,Það var leiðinlegt að sjá Steina fara, ég var alls ekki sáttur með þessa ákvörðun. Ég er ekki sá eini sem var ósáttur, við vorum það allir en þetta er eitthvað sem stjórnin ákveður. Það er ekkert sem við getum gert, það var leiðinlegt að sjá Steina fara enda er hann toppmaður. Það var hann sem fékk mig í Leikni og það var leiðinlegt að missa hann en svona er þetta."
Pape lýst þó vel á hvað Zoran hefur fram að færa og segir hann harðan við sig.
,,Zoran leggur mikið upp úr taktík og er svolítið spes, hann er harður en ég ætti að vera vanur því Óli Þórðar var að þjálfa mig. Þetta er því ekkert nýtt fyrir mig, hann vill breyta leikstílnum mínum og biðja mig um að gera hluti sem ég hef aldrei verið látinn gera áður."
,,Hann vill breyta móttöku á boltanum og hvernig hlaupin mín eiga að vera, hann vill breyta því strax. Hann tók fimm mínútna ræðu inni í klefa um daginn þar sem hann talaði bara um mig. Næstu vikur verða erfiðar fyrir mig, hann mun sparka í rassinn á mér en ég verð betri að því. Hann sagði mér að passa mig að verða ekki pirraður, ég er vanur þessu."
Pape komst í hann krappann á laugardaginn er hann kom ekki til leiksins í mætingargallanum og Zoran var ekki sáttur með það.
,,Ég var heppinn að skora tvö mörk því ég mætti ekki í gallanum og hann ætlaði að refsa mér fyrir það. Hann kom til mín klukkutíma fyrir leik og sagði að ef ég myndi skora tvö mörk þá myndi ég sleppa við refsingu. Ég var frekar heppinn á laugardaginn, hann er toppnáungi," sagði Pape að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)

