Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
,,Þetta var frábært, bara alveg eins og við vildum hafa það," sagði Arnar Már Guðjónsson leikmaður ÍA í samtali við Fótbolta.net en hann er leikmaður 13. umferðar í 1. deildinni.
Arnar Már skoraði fyrsta mark ÍA í 0-6 sigri á Þrótti í síðustu viku.
,,Það má segja að þetta hafi verið besti leikur okkar í sumar, þetta var sama barátta og hefur verið en við náðum upp góðu spili."
,,Það kveikti í okkur þessi slaka frammistaða gegn HK og var ágætis vakning að ef við erum ekki 100 prósent þá erum við ekki það góðir."
Skagamenn hafa spilað frábærlega í sumar og eru með sextán stiga forskot á þriðja sætið en liðið hefur ekki tapað leik í deildinni.
,,Það er ekkert í stöðunni að slaka á, ef við klárum verkefnið getum við kannski slakað á. Það er búið að stimpla það inn í okkur og það er ekkert að fara að gerast."
,,Þetta er búið að vera eins og í draumi, við erum ekki búnir að tapa leik í deildinni. Það var mikilvægt fyrir okkur að byrja vel og sjálfstraustið kom fljótt."
Skagamenn hafa byrjað síðustu tvö sumur á undan illa en í sumar hefur liðið vart stigið feilspor.
,,Það er lang mesti munurinn frá síðustu árum að við byrjum mótið vel. Lykillinn að þessu er bara góð þjálfun í vetur, fyrst og fremst. Allir leikmenn liðsins geta hlaupið í 90 mínútur án þess að finna fyrir því."
,,Svo erum við vel skipulagðir, við erum búnir að fá okkur fimm mörk og þar af tvö úr vítum og eitt sjálfsmark. Liðin eru ekki að opna okkur mikið."
Arnar segir að gaman væri að fara taplausir í gegnum mótið.
,,Það er klárlega eitthvað sem getur komið mönnum í gírinn fyrir leiki þrátt fyrir að við værum búnir að tryggja okkur upp, ég held að það séu alilr á því," sagði Arnar að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 12.umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)



