Þórir Guðjónsson (Leiknir) er leikmaður 14. umferðar 1. deildar
,,Við vorum að spila vel og þetta var frábært. Það var síðan æðisleg tifinning að skora þessi mörk," sagði Þórir Guðjónsson leikmaður Leiknis R. við Fótbolta.net í dag en hann er leikmaður 14. umferðar í fyrstu deild karla.
Þórir fór á kostum á vinstri kantinum þegar Leiknir sigraði Þrótt 5-1 í síðustu viku en hann skoraði tvívegis í leiknum.
Þórir fór á kostum á vinstri kantinum þegar Leiknir sigraði Þrótt 5-1 í síðustu viku en hann skoraði tvívegis í leiknum.
Þetta var annar leikur Þóris með Leikni og fyrsti leikurinn í byrjunarliði en hann kom til félagsins á láni frá Val á dögunum.
,,Þeir höfðu trú á mér og höfðu mikinn áhuga á að mér. Þetta er flottur hópur og það er góður liðsandi þarna."
Leiknir hefur unnið síðustu þrjá leiki en gengi liðsins hefur breyst til batnaðar eftir að Zoran Miljkovic tók við stjórnartaumunum í síðasta mánuði.
Þrátt fyrir sigrana er Leiknir ennþá í fallsæti en Þórir er sannfærður um að Breiðhyltingar nái að bjarga sér frá falli.
,,Að sjálfsögðu. Við erum með feykilega gott lið og eigum alls ekki að vera þarna," sagði Þórir sem er ánægður með Zoran þjálfara.
,,Mér líst mjög vel á hann og hann er góður þjálfari. Þetta er mjög taktískt hjá honum og hann leggur mikla áherslu á að spila stuttar sendingar."
Leiknismenn fengu frí um helgina en mættu aftur til æfinga í gær. Næsti leikur liðsins er síðan gegn Selfyssingum á útivelli á fimmtudagskvöldið.
,,Þeir eru þarna í toppbaráttunni á meðan við erum að berjast fyrir lífi okkar. Þetta verður erfiður leikur en við eigum roð í öll þessi lið," sagði Þórir.
Sjá einnig:
Leikmaður 13.umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12.umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)



