Halldór Arnar Hilmisson leikmaður Þróttar skoraði tvö mörk er liðið vann HK 3-1 í 1. deild karla.
Halldór hefur verið góður með Þrótti í sumar en hann er leikmaður 15. umferðar hér á Fótbolta.net.
Halldór hefur verið góður með Þrótti í sumar en hann er leikmaður 15. umferðar hér á Fótbolta.net.
,,Leikurinn gegn HK var ágætur að mörgu leyti og sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við skoruðum mörkin. Það var flott hjá okkur," sagði Halldór í samtali við Fótbolta.net.
,,Mér fannst við koma sprækir til leiks og vorum að búa til mikið af sóknum, það var mikið af hlaupum og góðum sendingum. Mörkin komu þarna á stuttum tíma."
Halldór skoraði fyrsta og þriðja mark Þróttar en þau voru nánast eins.
,,Þau voru nánast alveg eins, við náðum að hlaupa á vörnina hjá þeim og senda inn fyrir. Þetta gekk vel."
Margir spáðu Þrótti slæmu gengi í sumar eftir að hafa verið slakir á undirbúningstímabilinu.
,,Sumarið hefur verið upp og ofan, við byrjuðum sumarið mjög vel en síðustu tvær umferðir á undan þessu voru ekki til útflutnings. Svona heilt yfir er þetta bara búið að vera gott."
,,Mér fannst við spila ágætlega í vetur þrátt fyrir að úrslitin hefðu ekki verið góð, maður hafði trú á að þetta yrði ekki eins slæmt og menn voru að gera tala um."
Halldór gekk í raðir Þróttar fyrir síðustu leiktíð en samningur hans rennur út eftir þessa leiktíð. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann gerir.
,,Ég er ekkert búinn að spá í þessu, það kemur í ljós bara hvað maður gerir."
,,Skrokkurinn er í fínu lagi, maður æfir vel og sleppur vonandi við meiðsli og þá er maður í góðum gír," sagði Halldór í samtali við Fótbolta.net.
Sjá einnig:
Leikmaður 14.umferðar - Þórir Guðjónsson (Leiknir)
Leikmaður 13.umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12.umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)


