KF 7 - 4 Völsungur:
1-0 Gabríel Reynisson
2-0 Sigurbjörn Hafþórsson
3-0 Þórður Birgisson
4-0 Þórður Birgisson
4-1 Arnþór Hermannsson
4-2 Elfar Árni Aðalsteinsson
5-2 Þórður Birgisson
6-2 Gabríel Reynisson
6-3 Bjarki Baldvinsson
6-4 Sjálfsmark
7-4 Halldór Logi Hilmarsson
1-0 Gabríel Reynisson
2-0 Sigurbjörn Hafþórsson
3-0 Þórður Birgisson
4-0 Þórður Birgisson
4-1 Arnþór Hermannsson
4-2 Elfar Árni Aðalsteinsson
5-2 Þórður Birgisson
6-2 Gabríel Reynisson
6-3 Bjarki Baldvinsson
6-4 Sjálfsmark
7-4 Halldór Logi Hilmarsson
KF tók á móti Völsungi á Ólafsfirði í gærkvöldi, við hreint út sagt frábærar aðstæður, smá golu og frábærum Ólafsfjarðarvelli, sem hefur væntanlega sjaldan eða aldrei verið betri. KF vann fyrri leikinn á Húsvík 2-0 og Völsungar vildu væntanlega hefna fyrir þau úrslit.
En það var ekki að sjá á þeirra leik í upphafi að þeir ætluðu sér það. Strax eftir hálftíma leik var staðan nefnilega orðin 4-0.
Heimamenn byrjuðu leikinn að mikilli hörku og áttu þeir grænklæddu í miklum vandræðum með sóknarmenn heimamanna, þá sérstaklega Gabríel Reynisson og Þórð Birgisson.
Það var einmitt Gabríel sem skoraði 1. mark heimamanna strax á sjöundu mínútu. Hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörn gestanna frá Agnari Sveinssyni og var á undan Kjartani Páli, markmanni Völsungs, í boltann og rendi honum í autt markið.
Heimamenn voru ekki lengi að bæta við öðru marki, því Kjartan fékk sendingu aftur, sem Þórður Birgisson elti og Kjartan hreinsaði frá en boltinn fór í Þórð og upp í loftið sem endaði með því að Sigurbjörn Hafþórsson skallaði boltann nánast á marklínu innfyrir mark gestanna og staðann orðinn 2-0 eftir 15 mínútur. Gestirnir virkuðu mjög sofandi og náðu lítið að skapa sér fram á við.
Þórður Birgisson skoraði síðan sitt fyrsta mark þegar um 30 mín voru liðnar af leiknum, þá komst Þórður ein í gegn um vörn Völsunga, eftir að hafa hlaupið af sér varnarmenn Völsungs og setti boltann fram hjá Kjartani. Vörn gestana virkaði mjög óörugg í fyrrihálfleik, þó var Haukur Hinriksson að skila sínu ágætlega. Þórður Birgisson skoraði síðan sitt annað mark þegar 33 mínútur voru liðnar af leiknum og staðan orðin 4-0.
Áhorfendur á bandi heimamanna mjög sáttir við leik sinna manna endad ekki annað hægt.
Gestirnir fengu þó smá von rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, þegar heimamenn gerðu sig seka um að missa boltann mjög aftarlega á miðsvæðinu, og náðu gestirnir að nýta sér það mjög vel og skoraði Arnþór Hermannsson gott mark fyrir gestina eftir laglega fyrirgjöf frá hægri kanti. Staðan sem sagt 4-1 í hálfleik.
Gestirnir byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti. Því Elfar Aðalsteinson skoraði strax á 50. mínútu og Völsungar komnir inn í leikinn. Elfar fékk boltann vel fyrir utan markteig og hamraði boltanum í hægra hornið á marki KF alveg út við stöng. Mjög gott skott hjá Elfari.
Heimamenn virtust vakna við markið og Þórður var ekki búinn að segja sitt síðasta og fullkomnaði þrennuna með marki á 65. mínútu. Þórður hamraði boltan viðstöðulaust í mark horn gestanna.
Tæpum 10 mínútum síðar kom mark leiksins, þegar Gabríel Reynisson þvældi að því er virtist 4 eða 5 varnarmenn heimamanna áður en hann lagði boltann fram hjá Kjartani í marki gestanna.
Þetta mark var hreint með ólíkindum, og hefðu fótbolta snillingarnir í útlöndum verið mjög stoltir af tilþrifum sem þessum.
Staðan því orðin 6-2 og leikurinn nánast búinn, eða hvað. Húsvíkingar eru ekki þekktir fyrir að gefast upp þó að á móti blási. Bjarki Baldvinsson sem hafði komið inná sem varamaður skoraði 3 ja mark gestanna þegar um 3 mínútur lifðu af venjulegum leiktíma, markið kom eftir hornspyrnu og féll boltinn fyrir Bjarka eftir barning í víteteig heimamanna, sem gerði vil í að klára færið. Gestirnir minnkuðu svo muninn ennfrekar í 6-4 tveim mínútum síðar þegar Kristján Vilhjálmsson, varð fyrir því óláni að skora í eigið mark eftir vel útfærða aukaspyrnu hjá gestunum. Von kviknaði því aftur hjá gestunum því viðbótartíminn var 5 mínútur.
Sú von sloknaði reyndar á 93. mínútu þegar Halldór Logi skoraði 7 mark heimamanna eftir hornspyrnu, markið var nokkuð líkt því sem Bjarki Baldvinsson, hafði skorað nokkru áður fyrir gestina, boltinn datt niður eftir barning í teig gestanna og kláraði hann færið vel. Kjartan vildi reyndar meina að brotið hafi verið á sér en Bjarni Hrannar dómari var ekki á sama máli. Niðurstaðan því 7-4 í ótrúlegum fótboltaleik á Ólafsfirði.
Heimamenn hafa nú skorað 16 mörk í þremur síðustu heimaleikjum sínum.



