Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 16. ágúst 2011 10:00
Hörður Snævar Jónsson
Bestur í 1. deild: Gróttuvitarnir eru að hasla sér völl
Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Eyjólfur Garðarsson
Andri Björn Sigurðsson leikmaður Gróttu átti stórleik er liðið vann ÍR 4-1 í 16. umferð 1. deildar karla og er hann leikmaður umferðarinnar.

,,Ég var mjög sáttur með spilamennsku liðsins í leiknum, Það voru allir að skila sínu og menn að vinna fyrir hvorn annan, Vörnin var frábær, miðjan frábær og sóknarmenn liðsinns gríðalega ógnandi allan leikinn," sagði Andri í samtali við Fótbolta.net.

Andri var þarna að spila gegn sínum gömlu félögum og náði að skora fernu gegn þeim. Hann fékk lítinn spiltíma í Breiðholtinu en hefur spilað mikið með Gróttu í sumar.

,,Þetta eru auðvitað blendnar tilfinningar hinsvegar er þetta gaman líka, eitthvað sem maður gleymir eflaust aldrei."

,,Ég tel mig hafa sýnt það í þessum leik að ég hafi verðskuldað meiri spilatíma klárlega, en kannski eru ekki allir aðrir á sama máli,"
sagði Andri sem segir leikinn gegn leikinn gegn ÍR þann langbesta hjá sér í sumar.

,,Þetta var minn lang besti leikur minn í sumar, kannski af því ég hef verið að fela mig útá kanti það sem af er sumri."

Andra líkar vel hjá Gróttu og kann vel við Sigurð Helgason þjálfara liðsins.

,,Ég er bara gríðalega ánægður, Siggi hefur gefið mér tækifæri til að sýna mig og sanna og ég er gríðalega þakklátur fyrir það. Maður verður að endurgjalda þjálfaranum traustið og leggja sig 100% fram í hvern einasta leik. Annars er allt í kringum klúbbinn ótrúlega flott og fagmannlega unnið og það er hugsað vel um mann hér. Svo er hópurinn auðvitað frábær og mórallinn líka."

Grótta heimsækir Hauka í kvöld og fara langt með að tryggja sæti sitt í deildinni með sigri.

,,Við sýndum það í síðasta leik gegn Haukum að við getum unnið þá, Ef við höldum áfram að spila eins og við gerðum gegn ÍR þaá er ég sannfærður um að við getum unnið leikinn. Ég vil bara nota tækifærið og hvetja allt Gróttufólk til að fjölmenna á Ásvelli í kvöld og styðja við bakið á okkur eins og þið hafið gert svo frábærlega í allt sumar, Gróttuvitarnir eru klárlega að hasla sér völl sem eitt allra öflugasta stuðnigsmannalið landsins," sagði Andri að lokum í samtali við Fótbolta.net.

Sjá einnig:
Leikmaður 15. umferðar Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 14.umferðar - Þórir Guðjónsson (Leiknir)
Leikmaður 13.umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12.umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Slapp
banner
banner