Artjoms Goncars (Víkingur Ó.) er leikmaður 18. umferðar
,,Þetta var mjög góður leikur og við vorum mjög góðir. Við erum á góðu skriði og verðum að halda áfram og reyna að ná öðru sætinu," sagði Artjoms Goncars varnarmaður Víkings Ó. við Fótbolta.net í gær en hann er leikmaður 18. umferðar í fyrstu deild karla.
Artjoms spilaði mjög vel í hægri bakverðinum og var tvívegis á skotskónum þegar Ólafsvíkingar unnu Þrótt 4-0 á útivelli síðastliðið föstudagskvöld.
Artjoms spilaði mjög vel í hægri bakverðinum og var tvívegis á skotskónum þegar Ólafsvíkingar unnu Þrótt 4-0 á útivelli síðastliðið föstudagskvöld.
Ólafsvíkingar eru eftir sigurinn í fjórða sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir Selfyssingum i öðru sætinu. Víkingur fær Selfyssinga í heimsókn á laugardag.
,,Við verðum bara að vinna okkar leiki og eftir það sjáum við hvar við stöndum. Leikurinn gegn Selfyssingum er einn sá mikilvægasti á tímabilinu og við verðum að vinna hann."
,,Við höfum verið að spila mjög vel og ef við náum okkar besta fram þá held ég að við eigum góða möguleika."
Artjoms lék einnig með Víkingi þegar liðið rúllaði yfir aðra deildina í fyrra. Hann ákvað síðan að koma aftur til Ólafsvíkur fyrir þetta sumar.
,,Allir hér eru mjög vingjarnlegir og ég hef það mjög gott hér. Í fyrra spilaði vinur minn Aleksandrs Cekulajevs hér og Víkingur var í leit að varnarmanni."
,,Ég var að spila í Litháen með ekki svo góðu liði og ég hugsaði mér, af hverju ekki að fara til Íslands. Hér er góður fótbolti og staðan betra í Lettlandi, Eistlandi eða Litháen. Við fórum upp í fyrra og ég ákvað að koma aftur þar sem ég er ánægður hér," sagði Artjoms sem er ekki búinn að ákveða hvort hann komi aftur til Íslands næsta sumar.
,,Ég get ekki svarað því núna en við höldum sama liði og núna verð ég kannski áfram. Ef við höldum sama liði getum við barist um að komast upp á næsta ári en ég vona samt að við náum því í ár."
Sjá einnig:
Leikmaður 16. umferðar - Andri Björn Sigurðsson (Grótta)
Leikmaður 15. umferðar - Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 14.umferðar - Þórir Guðjónsson (Leiknir)
Leikmaður 13.umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12.umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)


