Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 26. ágúst 2011 18:00
Magnús Már Einarsson
Bestur í 1. deild: Vona að ég verði áfram hér
Edin Beslija (Víkingur Ó.) er leikmaður 17.umferðar í 1. deild
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
17.umferðinni í fyrstu deild karla lauk í vikunni. Edin Beslija er leikmaður 17. umferðar á Fótbolta.net en hann stjórnaði umferðinni á miðjunni í 3-0 sigri Víkings frá Ólafsvík á HK í síðustu viku.

,,Ég er mjög ánægður með þessa viðurkenningu. Þetta var góður leikur og ég náði að skora tvö mörk," sagði Beslija við Fótbolta.net í dag.

Hinn 24 ára gamli Beslija er frá Bosníu/Herzegóvínu en hann kom til Ólafsvíkinga fyrir síðasta tímabil. Beslija er ánægður með gæðin í íslenska boltanum.

,,Ég var hér á síðasta ári líka þegar við spiluðum í annarri deildinni en fyrsta deildin er mun betri. Fótboltinn hér er góður og betri en í annarri deildinni í heimalandi mínu þar sem ég spilaði með liði sem heitir Rudar."

Í liði Víkings eru einnig tveir aðrir leikmenn sem koma frá Bosníu/Herzegóvínu.

,,Tveir vinir mínir eru að spila hér líka, Eldar Masic og Emir Dokara. Við búum saman og það er gott að hafa þá líka hérna. Við getum talað okkar móðurmál og rætt saman."

Víkingur Ólafsvík fær Selfoss í heimsókn á morgun. Ólafsvíkingar eru fyrir leikinn í fimmta sæti, sjö stigum á eftir Selfyssingum sem eru í öðru sætinu. Beslija segir að Ólafsvíkingar haldi ennþá í vonina um að komast upp í Pepsi-deildina þegar fjórar umferðir eru eftir.

,,Selfoss er gott lið en við getum unnið þennan leik. Ef Selfoss tapar tveimur leikjum það sem eftir er þá eigum við góðan möguleika. Við vonumst til að eiga möguleika á að fara upp."

Beslija kann vel við sig í Ólafsvík og vonast til að leika áfram með Víkingi á næsta tímabili.

,,Það er mjög gott að vera í Ólafsvík og ég vona það. Ég veit það ekki núna en ég vona að ég verði áfram hér," sagði Beslija.

Sjá einnig:
Leikmaður 18. umferðar - Artjoms Goncars (Víkingur Ó.)
Leikmaður 17 umferðar Edin Beslija (Víkingur Ó.)
Leikmaður 16. umferðar - Andri Björn Sigurðsson (Grótta)
Leikmaður 15. umferðar - Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 14.umferðar - Þórir Guðjónsson (Leiknir)
Leikmaður 13.umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12.umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11.umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9.umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7.umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6.umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5.umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4.umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3.umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2.umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1.umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)
Slapp
banner
banner