Dan Howell leikmaður 19. umferðar
Dan Howell skoraði þrennu fyrir KA í 3-0 sigri á Gróttu um helgina og er leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net.
,,Þetta var mitt gamla lið, þetta voru blendnar tilfiningar að spila þarna. Ég vissi ekki hvernig þetta yrði því það voru tilfiningar," sagði Howell í samtali við Fótbolta.net.
Howell lék með Gróttu í fyrra en samdi við KA í vetur og hefur spilað með liðinu í sumar.
,,Þegar allt kemur til alls vill ég að bæði lið haldi sér í deildinni en ég er mjög sáttur með úrslitin."
,,Ég reyndi að gera mitt besta og hjálpa liðinu mínu en ekki til að sýna einhverjum hvað ég get," sagði Howell sem reyndi að fagna ekki mörkunum sínum.
,,Ég reyndi að fagna ekki mörkunum en ég fagnaði því síðasta því þarna var ég að ná fyrstu þrennu minni á Íslandi."
Howell segir lífið á Akureyri öðruvísi en í Reykjavík en hann kann vel við sig fyrir norðan.
,,Lífið hérna er eins og ég var alinn upp við, þetta er lítill bær. Svona var ég alinn upp, það þekkja þig allir og það er fjölskyldu stemmning hérna. Það er frábært að vera hérna, veðrið gæti verið betra en það er ekki hlutur sem er til að kvarta yfir," sagði Howell sem kann vel við Gunnlaug Jónsson þjálfara KA.
,,Gulli hefur verið frábær, hann gaf mér tækifæri til að spila hérna og ég hef reynt að spila vel fyrir hann. Hann hefur verið þolinmóður við mig, við höfum stundum átt erfitt í deildinni en hann hefur staðið við bakið á mér."
,,Móralinn er góður, það komu erfiðir tímar en við höfum verið á uppleið undanfarið. Vonandi getum við klárað tímabilið á góðum nótum," sagði Howell sem vill taka annað tímabil með KA.
,,Ég myndi elska að taka annað tímabil með KA, við munum ræða þau mál fljótlega og sjáum hvað gerist. Lífið er gott hérna."
Sjá einnig:
Leikmaður 18. umferðar - Artjoms Goncars (Víkingur Ó.)
Leikmaður 17 umferðar Edin Beslija (Víkingur Ó.)
Leikmaður 16. umferðar - Andri Björn Sigurðsson (Grótta)
Leikmaður 15. umferðar - Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar - Þórir Guðjónsson (Leiknir)
Leikmaður 13. umferðar - Arnar Már Guðjónsson (ÍA)
Leikmaður 12. umferðar - Pape Mamadou Faye (Leiknir)
Leikmaður 11. umferðar - Mark Doninger (ÍA)
Leikmaður 10. umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 9. umferðar - Babacar Sarr (Selfoss)
Leikmaður 8. umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 7. umferðar - Árni Freyr Guðnason (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar - Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)
Leikmaður 5. umferðar - Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA)
Leikmaður 4. umferðar - Kristján Finnbogason (Grótta)
Leikmaður 3. umferðar - Elvar Páll Sigurðsson (KA)
Leikmaður 2. umferðar - Tomi Ameobi (BÍ/Bolungarvík)
Leikmaður 1. umferðar - Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)


