,,Við náðum að redda þessu í dag," sagði Óskar Pétursson fyrirliði Grindavíkur eftir að liðið hélt sér uppi í Pepsi deildinni í Vestmannaeyjum í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 2 Grindavík
Grindavík vann 2-0 sigur í Eyjum og varði Óskar eina af tveimur vítaspyrnunum sem Tryggvi Guðmundsson klikkaði á.
,,Þetta er taugastrekkjandi að spila svona leiki, þetta er unaðsleg tilfinning."
,,Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég er orðlaus."
Nánar er rætt við Óskar í sjónvarpinu hér að ofan.