Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mán 17. október 2011 14:39
Elvar Geir Magnússon
Flestir áhorfendur á KR-vellinum en fæstir í Garðabæ
KSÍ hefur gefið út áhorfendatölur sumarsins í Pepsi-deild karla. 1.122 áhorfendur mættu að meðaltali á leik en í fyrra var meðaltalið 1.205.

Flestir áhorfendur mættu á heimaleiki KR að þessu sinni en 2.148 áhorfendur mættu að staðaldri á KR völlinn. FH var með næstbestu aðsóknina, 1.686 áhorfendur að meðaltali á heimaleiki.

Fæstir áhorfendur mættu á heimaleiki Stjörnunnar.

Flestir mættu einnig á útileiki hjá Íslandsmeisturum KR en 1.529 mættu að meðaltali en næstbesta aðsóknin var á útileiki hjá ÍBV, 1.347 áhorfendur.

Fjölmennast á leik KR og Fylkis í 21. umferðinni en þá mættu 3.001 áhorfendur í Vesturbæinn. Fæstir áhorfendur voru hinsvegar á leik Vals og Þórs í 20. umferð þar sem 376 áhorfendur mættu á leikinn.

Aðsókn á heimavelli - meðaltal á leik:
1. KR - 2.148
2. FH - 1.686
3. Valur - 1.102
4. Víkingur - 1.096
5. Fylkir - 1087
6. Breiðablik - 1065
7. Þór - 971
8. Fram - 920
9. Keflavík - 904
10: Grindavík - 843
11. ÍBV - 826
12. Stjarnan - 822
Slapp
banner
banner