Þrettánda umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina en átta leikir eru á dagskrá á morgun og tveir á sunnudag.
Guðni Bergsson fékk það verkefni að spá í leiki helgarinnar að þessu sinni og koma með eina setningu um hvern leik.
Guðni lék með Tottenham frá 1988-1994 og síðan með Bolton frá 1995-2003 þar sem hann var einn vinsælasti leikmaðurinn hjá stuðningsmönnum félagsins.
Guðni Bergsson fékk það verkefni að spá í leiki helgarinnar að þessu sinni og koma með eina setningu um hvern leik.
Guðni lék með Tottenham frá 1988-1994 og síðan með Bolton frá 1995-2003 þar sem hann var einn vinsælasti leikmaðurinn hjá stuðningsmönnum félagsins.
Stoke 3 - 1 Blackburn (Á morgun 12:45)
Stoke eru erfiðir heim að sækja þó að þeim hafi gengið illa að undanförnu og þeir þurfa á sigri að halda.
Bolton 2 - 1 Everton (Á morgun 15:00)
Talandi um að þurfa á sigri að halda þá er þörf á mínum gömlum heimaslóðum og ég verð að vera bjartsýnn fyrir mína menn.
Manchester United 1 - 1 Newcastle (Á morgun 15:00)
Áhugaverður leikur, United hefur ekki verið upp á sitt besta undanfarið á meðan Newcastle hefur farið mikinn svo ég spái jafntefli.
Chelsea 3 - 0 Wolves (Á morgun 15:00)
Chelsea þarf að koma sér á sigurbraut og vinnur 3-0.
Norwich 1 - 1 QPR (Á morgun 15:00)
QPR er á góðu róli en Norwich er með nokkuð góðan heimavöll.
Sunderland 2 - 1 Wigan (Á morgun 15:00)
Sunderland hefur ekki verið sannfærandi en þaðan af síður Wigan sem hafa verið mjög slakir.
WBA 2 - 3 Tottenham (Á morgun 15:00)
Þetta gæti orðið skemmtilegur markaleikur.
Arsenal 2 - 1 Fulham (Á morgun 17:30)
Arsenal hefur verið að rétta sig við og það er viss stemning hjá þeim.
Swansea 2 - 1 Aston Villa (Á sunnudag 13:30)
Swansea er léttleikandi og skemmtilegt lið sem stólar svolítið á heimavöllinn og þeir hafa þetta 2-1.
Liverpool 1 - 2 Manchester City (Á sunnudag 16:00)
Þetta er slungið en ég ætla að tippa á 2-1 útisigur, Manchester City eru bestir í úrvalsdeildinni þó að það gangi síður í Meistaradeildinni.
Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)





