14.umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina en að þessu sinni er það Kristján Guðmundsson þjálfari Vals sem spáir í leikina.
Kristján er sjálfur stuðningsmaður Derby County en hann átti ekki í vandræðum með að spá í leikina í úrvalsdeildinni.
Kristján er sjálfur stuðningsmaður Derby County en hann átti ekki í vandræðum með að spá í leikina í úrvalsdeildinni.
Newcastle 2 - 0 Chelsea (12:45 á morgun)
Chelsea heldur áfram að halda vonbrigðum.
Blackburn 0 - 3 Swansea (15:00 á morgun)
Blackburn er með allt niður um sig eftir tapið í deildabikarnum og Swansea verða með svo margar sendingar sín á milli að þeir kaffæra þá óvænt 3-0.
Manchester City 5 - 0 Norwich (15:00 á morgun)
Það hefur ekki sést annar eins leikmannahópur á þessu jarðarhveli eins og City er með núna.
QPR 2 - 1 WBA (15:00 á morgun)
QPR átti ekki sérstakan leik síðast en þeir eiga góðan leik núna og vinna.
Tottenham 3 - 1 Bolton (15:00 á morgun)
Tottenham vinnur öruggan sigur 3-1 þar sem Gareth Bale verður með tvö.
Wigan 1 - 3 Arsenal (15:00 á morgun)
Það verður óvænt hve staðan 1-1 verður lengi en Arsenal skorar tvö undir lokin og vinnur útisigur.
Aston Villa 2 - 0 Manchester United (17:30 á morgun)
Agbonlahor og Darren Bent verða í þvílíku formi með Villa sem vinnur 2-0.
Everton 1 - 1 Stoke (15:00 á sunnudag)
Þetta fer 1-1 eða 2-1 ef Everton fær þetta víti sem þeir eiga að fá.
Wolves 0 - 0 Sunderland (16:00 á sunnudag)
Vonbrigðin koma til með að leka af andlitum allra sem eru tengdir þessum leik.
Fulham 0 - 0 Liverpool (20:00 á mánudag)
Fulham spilar sterka vörn á litla vellinum sínum, Liverpool fékk flest allt út úr sínum leik gegn Chelsea og þeim tekst ekki að skora gegn Fulham.
Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)




