Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 09. desember 2011 12:00
Magnús Már Einarsson
Willum Þór Þórsson spáir í leiki helgarinnar á Englandi
15.umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina en að þessu sinni er það Willum Þór Þórsson þjálfari Leiknis sem spáir í leiki helgarinnar.

Willum ætlar sjálfur að skella sér á völlinn í England um helgina en hann er á leið á leik Manchester United og Wolves ásamt vini sínum Sigurði Hallvarðssyni.

Liverpool 3 - 0 QPR (15:00 á morgun)
Þó að ég haldi með mínum manni þá vinnur Liverpool.

Manchester United 5 - 0 Wolves (15:00 á morgun)
Manchester United lætur vonbrigði vikunnar öll lenda á Wolves og við fáum veislu.

Arsenal 2 - 0 Everton (15:00 á morgun)
Hollendingurinn er í toppformi.

Bolton 0 - 1 Aston Villa (15:00 á morgun):
Það er bras á Bolton.

Newcastle 1 - 1 Norwich (15:00 á morgun)
Byrjunarbomban er á enda hjá Newcastle.

Swansea 2 - 1 Fulham
Swansea eru massífir á heimavelli og þeir vinna þetta.

WBA 3 - 0 Wigan (15:00 á morgun)
Þetta smellur hjá WBA núna eftir smá hökt og þeir vinna 3-0.

Sunderland 1 - 0 Blackburn (13:30 á sunnudag)
Þetta er klassískur 1-0 sigur hjá Martin O'Neill.

Stoke 1 - 3 Tottenham (16:00 á sunnudag)
Heimamenn ná að skora eitt úr föstu leikatriði en Tottenham er mun sterkari.

Chelsea 2 - 0 Manchester City (20:00 á mánudag)
Það er komið að fyrsta tapi City, Chelsea vinnur 2-0 og Torres hrekkur í gírinn.

Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Slapp
banner