Heil umferð fer fram í enska boltanum um helgina og nokkrir áhugaverðir leikir eru á dagskrá, sérstaklega á sunnudag.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH, fær það verkefni að tippa á leiki umferðarinnar að þessu sinni og koma með eina setningu um hvern leik. Gunnleifur er harður stuðningsmaður Manchester City og hann telur að liðið muni rúlla yfir Arsenal á sunnudag.
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH, fær það verkefni að tippa á leiki umferðarinnar að þessu sinni og koma með eina setningu um hvern leik. Gunnleifur er harður stuðningsmaður Manchester City og hann telur að liðið muni rúlla yfir Arsenal á sunnudag.
Blackburn 1 - 3 WBA (15:00 á morgun)
Blackburn tapar 3-1 en samningurinn við Steve Kean verður framlengdur þrátt fyrir það.
Everton 2 - 2 Norwich (15:00 á morgun)
Tim Cahill bjargar stigi fyrir Norwich.
Fulham 0 - 1 Bolton (15:00 á morgun)
Grétar Rafn Steinsson verður með stoðsendingu.
Newcastle 0 - 1 Swansea (15:00 á morgun)
Þetta er búið spil og fallbarátta framundan hjá Newcastle.
Wolves 0 - 0 Stoke (15:00 á morgun)
Markalaust í einhverjum mesta "physical" leik enskrar knattspyrnu fyrr og síðar.
Wigan 2 - 1 Chelsea (17:30 á morgun)
Chelsea halda að þeir séu komnir með þetta eftir að hafa unnið besta lið deildarinnar um síðustu helgi en svo er alls ekki.
QPR 2 - 1 Manchester United (12:00 á sunnudag)
Maður leiksins Heiðar Helguson skorar bæði mörkin fyrir QPR.
Aston Villa 0 - 0 Liverpool (14:05 á sunnudag)
Andy Carroll byrjar leikinn og þess vegna endar hann 0-0.
Tottenham 0 - 0 Sunderland (15:00 á sunnudag)
Sunderland fer ekki fram yfir miðju en Keiren Westwood markvörður liðsins á leik lífs síns.
Manchester City 5 - 0 Arsenal (16:10 á sunnudag):
Arsenal verður refsað eftir tap hjá Manchester City í síðasta leik.
Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)



