Heil umferð fer fram í ensku úrvalsdeildinni fyrir jól en spilað er í dag, morgun og á fimmtudag.
Tónlistamaðurinn Friðrik Dór Jónsson fær það hlutverk að spá í leikina að þessu sinni. Friðrik Dór er mikill fótboltaáhugamaður en það er nóg að gera hjá honum í tónlistinni þessa dagana. Í kvöld verður Friðrik meðal annars á X-MAS 2011 í Kaplakrika en allur ágóði af tónleikunum rennur í minningarsjóð Hermanns Fannars Valgarðssonar.

Wolves 0 - 1 Norwich (19:45 í kvöld)
Grant Holt skorar eina markið eftir klafs í teignum í tíðindalitlum leik.
Blackburn 0 - 1 Bolton (20:00 í kvöld)
Grétar Rafn kemur inn í hálfleik, skorar óvænt og er síðan rekinn út af í lokin.
Aston Villa 0 - 4 Arsenal (19:45 á morgun)
Arsenal kemur sterkt til baka eftir tapið og van Persie setur þrennu og Yossi Benayoun eitt.
Manchester City 1 - 1 Stoke (19:45 á morgun)
Croucharinn jafnar undir lokin og tryggir Stoke stig.
Newcastle 2 - 0 WBA (19:45 á morgun)
Ameobi bræður skora sitthvort markið.
Fulham 1 - 2 Manchester United (20:00 á morgun)
Þetta fer 1-2 fyrir Manchester United og Ji-Sung Park verður maður leiksins.
Everton 0 - 0 Swansea (20:00 á morgun)
Vorm verður með stórleik enn og aftur.
QPR 3 - 0 Sunderland (20:00 á morgun)
Heiðar Helguson skorar með skalla í öruggum heimasigri.
Wigan 0 - 4 Liverpool (20:00 á morgun)
Allar flóðgáttir opnast, Suarez skorar 2 og Kuyt 2 í 4-0 sigri.
Tottenham 1 - 0 Chelsea (20:00 á fimmtudag)
Adebayor leggur upp sigurmarkið á ótrúlegan hátt fyrir Scott Parker sem skorar í autt markið.
Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)