Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 30. desember 2011 12:00
Magnús Már Einarsson
Hörður Magnússon spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Hörður Magnússon.
Hörður Magnússon.
Mynd: Stöð 2 Sport
19.umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram um helgina. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, var einungis með einn réttan leik þegar hann tippaði fyrir 18. umferðina í vikunni en jafnteflin gerðu honum erfitt fyrir. Sjö jafntefli voru í umferðinni en Bjarni spáði einungis að einn leikur myndi enda með jafntefli.

Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport, fær núna það verkefni að spá í leiki helgarinnar og koma með eina setningu um hvern leik.



Liverpool 2 - 0 Newcastle (19:45 í kvöld)
Andy Carroll brýtur ísinn og skorar tvö gegn sínum gömlu félögum.

Manchester United 4 - 0 Blackburn (12:45 á morgun)
Adam verður ekki lengi í paradís eftir að hafa náð jafntefli á Anfield og þeir steinliggja gegn United.

Arsenal 2 - 1 QPR (15:00 á morgun)
Robin van Persie gerir gæfumuninn enn eina ferðina.

Bolton 1 - 1 Wolves (15:00 á morgun)
Það verður lítið af flottum fótbolta og dagar Owen Coyle verða fljótt taldir.

Chelsea 3 - 0 Aston Villa (15:00 á morgun)
Ég hef ekki nokkra trú á Aston VIlla og ég spái öruggum Chelsea sigri þar sem Fernando Torres kveður árið með marki.

Norwich 0 - 0 Fulham (15:00 á morgun)
Norwich virðist aðeins vera að missa flugið og ég ætla að spá 0-0 jafntefli þar sem Delia Smith eigandi félagsins sofnar í hálfleik.

Stoke 1 - 1 Wigan (15:00 á morgun)
Þetta er leikur ólíkra leikstíla en ég ætla að gefa mér það að fagurfræðin skili einu stigi fyrir Roberto Martinez.

Swansea 1 - 3 Tottenham (15:00 á morgun)
Ég ætla að spá því að Walesverjanum Gareth BAle líði vel í heimalandinu og Tottenham vinnur öruggan 3-1 sigur.

WBA 1 - 1 Everton (12:30 á sunnudag)
Þetta veðrur baráttuleikur þar semt taktísk snilld Roy Hodgson kemur í ljós og WBA nær stigi gegn harðhausa liði Everton.

Sunderland 1 - 3 Manchester City (15:00 á sunnudag)
Sunderland liðið hefur verið á uppleið undir stjórn Martin O'Neill en það dugar ekki því Manchester City byrjar nýja árið með stæl og vinnur 3-1.

Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (3 réttir)
Bjarni Jóhannsson (1 réttur)
Slapp
banner
banner
banner