Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mán 02. janúar 2012 12:30
Magnús Már Einarsson
Sigurbjörn Hreiðarsson spáir í leiki vikunnar á Englandi
20.umferðin í ensku úrvalsdeildinni hefst í dag og henni lýkur á miðvikudag með tveimur leikjum.

Sigurbjörn Hreiðarsson, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, fékk það verkefni að spá í leikina að þessu sinni.

Sigurbjörn mun reyna að bæta árangur Harðar Magnússonar sem fékk fimm rétta þegar hann tippaði á leiki helgarinnar.

Aston Villa 1 - 1 Swansea (15:00 í dag)
Villa er með sjálfstraust frá Chelsea leiknum og Swansea er með aukið sjálfstraust eftir komu Gylfa.

Blackburn 1 - 0 Stoke (15:00 í dag)
Leikmenn Blackburn eru komnir í gang.

QPR 2 - 1 Norwich (15:00 í dag)
Heiðar kemur aftur í byrjunarliðið og sýnir mikilvægi sitt með því að skora eitt og leggja upp annað.

Wolves 0 - 2 Chelsea (15:00 í dag)
Chelsea heldur áfram jó-jó gengi sínu og núna er verið að draga þá upp.

Fulham 1 - 3 Arsenal (17:30 í dag)
Robin van Persie er óstöðvandi og hann skorar þrennu.

Tottenham 2 - 0 WBA (19:45 á morgun)
Tottenham eru of sterkir fyrir Roy Hodgson og félaga.

Wigan 2 - 1 Sunderland (19:45 á morgun)
Wigan vinnur og 80% af sætunum á vellinum verða nýtt.

Manchester City 0 - 1 Liverpool (20:00 á morgun)
Það vorar fyrr í Bítlaborginni heldur en annars staðar.

Everton 2 - 0 Bolton (20:00 á miðvikudag)
David Moyes galdrar fram sigur annan leikinn í röð.

Newcastle 2 - 2 Manchester United (20:00 á miðvikudag)
Sir Alex Ferguson þarf að bíða ennþá lengur eftir afmælisgjöfinni sinni.

Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Hörður Magnússon (5 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (3 réttir)
Bjarni Jóhannsson (1 réttur)
Slapp
banner
banner
banner