Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 13. janúar 2012 12:00
Elvar Geir Magnússon
Kári Kristján spáir í leiki helgarinnar á Englandi
Mynd: Heimasíða Wetzlar
„Ég held með liði sem hefur ekki unnið Premier league-dollu og það er mjög erfitt. Ég er Púllari," segir Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Wetzlar í Þýskalandi.

Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu halda um helgina til Serbíu þar sem Evrópumótið fer fram en Kári gaf sér tíma til að spá í leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Hann á ansi góða möguleika á að bæta árangur síðasta spámanns. Sigurbjörn Hreiðarsson var aðeins með einn réttan.

Aston Villa 1 - 1 Everton (á morgun kl. 15)
Alex McLeish, fyrrum stjóri Birmingham, er afleitur og getur þess vegna ekki unnið Everton á heimavelli.

Blackburn 2 - 0 Fulham (á morgun kl. 15)
Blackburn gekk vel gegn Liverpool og Manchester United og vinnur þennan leik kletthart 2-0.

Chelsea 4 - 1 Sunderland (á morgun kl. 15)
Ég tippa á að Fernando Torres skori tvö mörk í leiknum og stimplar sig loksins inn.

Liverpool 3 - 1 Stoke (á morgun kl. 15)
Við lendum alltaf í veseni með helvítis litlu liðin. Við vinnum samt þennan leik 3-1 og Pepe Reina fær eitt ömurlegt mark á sig.

Manchester United 4 - 1 Bolton (á morgun kl. 15)
Bolton geta verið mjög harðir, þetta er 2-1. Nei bíddu... ég ætla að doubla þetta, 4-1.

Tottenham 2 - 3 Wolves (á morgun kl. 15)
Eggert var að mæta í Wolves og þetta verða óvæntustu úrslit helgarinnar. Tottenham drullar á sig og Wolves vinnur í svakalegum leik.

West Brom 1 - 1 Norwich (á morgun kl. 15)
Ég óska þess að þú hefðir ekki spurt mig að þessum leik einu sinni, þetta er svo afleitur leikur. Þetta er steindautt 1-1.

Newcastle 3 - 2 QPR (á sunnudag kl. 13:30)
Heiðar Helguson stangar tvisti þarna inn, það er bara svoleiðis. Þeir tapa samt.

Swansea 0 - 3 Arsenal (á sunnudag kl. 16)
Þetta verður afgreiðsla hjá Arsenal.

Wigan 1 - 5 Man City (á mánudag kl. 20)
Manchester City geta verið lunknir við að rústa litlu liðunum.

Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Hörður Magnússon (5 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (3 réttir)
Sigurbjörn Hreiðarsson (1 réttur)
Bjarni Jóhannsson (1 réttur)
Slapp
banner
banner