„Á ég ekki frekar að spá í leikina í þýska?" spurði Atli Eðvaldsson kíminn þegar Fótbolti.net bað hann um að spá fyrir um leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
Atli skoraðist að sjálfsögðu ekki undan og hér að neðan má sjá hans spá. Atli heldur með Manchester City í enska boltanum.
Atli skoraðist að sjálfsögðu ekki undan og hér að neðan má sjá hans spá. Atli heldur með Manchester City í enska boltanum.
Erfitt verður fyrir hann að skáka spámanni síðustu viku, handboltalandsliðsmanninum Kára Kristjáni Kristjánssyni, sem var með sex rétta.
Norwich 1 - 2 Chelsea (á morgun kl. 12:45)
Leikmenn Chelsea verða að vinna ef þeir ætla að lenda í einu af þremur sætunum fyrir aftan City.
Everton 1 - 0 Blackburn (á morgun kl. 15)
Everton eru sterkir á heimavelli.
Fulham 0 - 2 Newcastle (á morgun kl. 15)
Newcastle er á góðu skriði og tekur þrjú stig úr þessum leik.
QPR 2 - 1 Wigan (á morgun kl. 15)
Heiðar skorar eitt og þá er ég sáttur.
Stoke 1 - 0 West Brom (á morgun kl. 15)
Sunderland 0 - 0 Swansea (á morgun kl. 15)
Það verður lítið í gangi í þessum leik. Sunderland fær stig með kraftabolta.
Wolves 1 - 1 Aston Villa (á morgun kl. 15)
Það er gaman fyrir Íslendinga að hafa eignast mann í Wolves, ég set samt jafntefli á þetta.
Bolton 1 - 1 Liverpool (á morgun kl. 17:30)
Kenny Dalglish hefur breytt miklu en Grétar og félagar ná jafntefli.
Manchester City 2 - 0 Tottenham (sunnudag kl. 13:30)
Það þarf ekki að spyrja að því. Við verðum að vinna þetta.
Arsenal 0 - 2 Manchester United (sunnudag kl. 16)
Sir Alex Ferguson er ótrúlegur. Þegar það þarf að ná í stigin þá gerir hann það.
Fyrri spámenn:
Þórarinn Ingi Valdimarsson (7 réttir)
Willum Þór Þórsson (7 réttir)
Kári Kristján Kristjánsson (6 réttir)
Auðunn Blöndal (6 réttir)
Albert Brynjar Ingason (6 réttir)
Ívar Guðmundsson (6 réttir)
Hörður Magnússon (5 réttir)
Guðni Bergsson (4 réttir)
Bjarni Guðjónsson (4 réttir)
Kristján Guðmundsson (3 réttir)
Gunnleifur Gunnleifsson (3 réttir)
Friðrik Dór Jónsson (3 réttir)
Sigurbjörn Hreiðarsson (1 réttur)
Bjarni Jóhannsson (1 réttur)



